Fimmtudagur 11. júní
Fasteignaleitin
Skráð 10. júní 2026

Bringur 19

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
55.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
27.900.000 kr.
Fermetraverð
501.799 kr./m2
Fasteignamat
30.450.000 kr.
Brunabótamat
34.650.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
2224080
Landnúmer
167232
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Inngangur
Sérinngangur
Hrafnkell Pálmi kynnir til sölu heillandi sumarhús á einstökum og eftirsóttum stað við Gullna hringinn, í fallegu umhverfi skammt frá Gullfossi og Geysi.
 
Hér er um að ræða frábært tækifæri fyrir þá sem leita að notalegri sumarhúsaeign í kyrrlátu og grónu umhverfi.
Eignin stendur á fallegu 5.000 fm eignalandi á lokuðu og friðsælu svæði sem er til einkanota.
Staðsetningin er einstaklega hentug, aðeins um 120 km frá Reykjavík, 13 km frá Geysi og 17 km frá Flúðum, þar sem meðal annars er að finna Secret Lagoon.
Einnig er stutt í Laugarás, þar sem nýlega hefur verið opnað glæsilegt baðlón sem eykur enn frekar á aðdráttarafl svæðisins.
Um er að ræða eignina Bringur 19 í Bláskógabyggð. Eignalóðin er skráð sem sumarbústaðaland og er 5.000 fm að stærð, sem gefur gott rými til útiveru, afslöppunar og frekari nýtingar.
 
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2027 er kr. 32.850.000.

 
Nánari lýsing eignar:
Húsið er vel skipulagt og býður upp á tvö svefnherbergi, stofu og gott baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél. Húsið er hitað með nýlegri varmadælu. Einnig eru rafmagnsofnar og kamína í húsinu.
Eldhúsið er vel búið og húsið hentar vel fyrir fjölskyldulíf og notalegar samverustundir. Í eldhúsinu er nýleg eldavél með spanhellu ásamt góðum ofni.
 
Lóðin er gróin, með birki og stöku trjám, mosa og berjalyngi sem skapa hlýlegt, skjólgott og afslappandi umhverfi.
Gengið er niður í hvilft þar sem finna má litla flöt og rólu, sem gefur lóðinni notalegan fjölskyldublæ.
Lóðin býður upp á fjölbreytta möguleika, meðal annars til að útbúa stærri flöt sem gæti hentað vel sem lítið fjölskyldutjaldsvæði.
Gott stæði sem getur rúmað 2-4 bíla, möguleiki á að stækka eða bæta við stæði neðar í götunni.
 
Á lóðinni stendur um 15 fm ókláraður geymsluskúr sem býður upp á spennandi möguleika fyrir handlaginn kaupanda, til dæmis sem framtíðar gestahús eða aukarými.
 
Eignin var byggð árið 1993.
 
Í Reykholti er ný sundlaug í byggingu og glæsileg laug í Minni-Borgum; báðir staðir eru í stuttri akstursfjarlægð frá eigninni og auka þjónustu- og afþreyingarmöguleika svæðisins.
Í Reykholti er einnig lítil og þægileg verslun, Bjarnabúð
.
 
Í nágrenninu er fjölbreytt afþreying í boði allt árið um kring, meðal annars matarupplifanir, jarðhitalaugar og náttúruperlur á borð við Gullfoss og Geysi. Hér sameinast friðsæld, náttúrufegurð og nálægð við vinsælustu áfangastaði Suðurlands.
 
Bringur 19 er því áhugaverður kostur fyrir kaupendur sem vilja eign á góðum stað, með fallegu landi, notalegu umhverfi og fjölbreyttum framtíðarmöguleikum.
 
Bringur 19, 806 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 222-4080 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Bringur 19 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 222-4080, birt stærð 55.6 fm.

Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/09/202321.350.000 kr.24.500.000 kr.55.6 m2440.647 kr.
02/06/202117.300.000 kr.21.500.000 kr.55.6 m2386.690 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyjafell 19
Eyjafell nýtt.jpg
Skoða eignina Eyjafell 19
Eyjafell 19
276 Mosfellsbær
122.1 m2
Sumarhús
524
692 þ.kr./m2
84.500.000 kr.
Skoða eignina Ölver 27
Skoða eignina Ölver 27
Ölver 27
301 Akranes
87.1 m2
Sumarhús
514
646 þ.kr./m2
56.300.000 kr.
Skoða eignina Vatnsholtsvegur 7
Vatnsholtsvegur 7
806 Selfoss
90 m2
Sumarhús
413
832 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Valhnjúkasund 12
Valhnjúkasund 12
805 Selfoss
45.4 m2
Sumarhús
12
705 þ.kr./m2
32.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin