Fimmtudagur 28. maí
Fasteignaleitin
Opið hús:31. maí kl 17:00-17:30
Skráð 20. maí 2026

Hraunteigur 28

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
101.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.900.000 kr.
Fermetraverð
750.000 kr./m2
Fasteignamat
74.200.000 kr.
Brunabótamat
46.950.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2018976
Landnúmer
104573
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjað fyrir utan baðherbergisglugga
Þak
Skipt um pappa og járn 2009
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Örlitlar skemmdir eru á steini í eldhúsi á tveimur stöðum.Tvær flísar eru lausar í eldhúsi. Sjá má bólgu neðst á úthlið búrskáps í eldhúsinnréttingu. Tvær flísar eru lausar á gólfi í eldhúsi og sprunga í einni flís. Skemmd er neðarlega á rennihurð i hjónaherbergi. 
Domusnova og Ingunn Björg kynna afar fallega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja, 101,2 fm íbúð með sérinngangi í fallegu þríbýlishúsi við Hraunteig 28. 
Um er að ræða góða eign í glæsilegu húsi á einum eftirsóttasta stað borgarinnar. Húsið var nýlega steinsallað að utan ( 2024),  skipt var um járn og pappa á þaki ásamt þakrennrum ( 2007) , drenlögn kringum hús var endurnýjuð ( 2009), skólplagnir undir húsi og út í götu voru endurnýjaðar ( c.a 2001). 
Snyrtileg lóð með hellulögðum stéttum með hitalögnum fyrir framan hús, rúmgóður gróðursæll garður með nýlegri timburverönd með skjólveggjum ásamt hellulagðri stétt í bakgarði. 

Frábær staðsetning örstutt frá Laugardalslaug og World Class Laugum. Stutt er í fjölbreytta þjónustu við Laugalæk með verslun, bakarí, ísbúð, kaffihúsi og kjötmeistara. Skólar og leikskólar eru einnig í næsta nágrenni. 


Skipulag eignarinnar er eftirfarandi: Eldhús opin inn í stofu / borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, sameiginlegt þvottahús á hæð. 

Framkvæmdir innan íbúðar:
  • Eldhús endurnýjað - Innrétting , borðplötur og tæki
  • Baðherbergi endurnýjað - Flísar, innrétting og tæki
  • Gólfefni endurnýjuð
  • Hurðar innan íbúðar endurnýjaðar - eldvarnarhurð úr íbúð í sameign
  • Ný rafmagnstafla (2025)
  • Pledge ljósastýring á flestum ljósum (2025)
  • Gólfhiti - ný yfirfarið sett upp nýtt rafrænt stjórnkerfi frá Salus (2025)
  • Allir gluggar endurnýjaðir fyrir utan á baðherbergi
  • Í sameign - rafmagnsmælar í rafmagnstöflu endurnýjaðir
  • Sett upp vatnsdæla í sameiginlegri hjóla og vagnageymslu. 

Nánri lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Góð sturta með glerhurð, innrétting undir vaski, upphengt salerni. 
Eldhús: Falleg og vönduð eldhúsinnrétting með miklu skápa og vinnuplássi, steinborðplötur, extra breitt spanhelluborð, tveir bakaraofnar, niðurfelldur vaskur. Flísar á gólfi. 
Stofa: Rúmgóð og björt stofa. Parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, gluggar á tvo vegu, fataskápar, parket á gólfi. 
Herbergi 2 : Rúmgott og bjart, fataskápar, parket á gólfi. 
Sameiginlegt þvottahús á hæðinni, hver íbúð með sér tengi fyrir sína vél. 
Sameiginleg hjólageymsla með útgengi á lóð. 


Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/04/202568.650.000 kr.74.900.000 kr.101.2 m2740.118 kr.
01/10/201219.150.000 kr.29.500.000 kr.101.2 m2291.501 kr.
27/06/201219.150.000 kr.29.000.000 kr.101.2 m2286.561 kr.Nei
13/07/200717.940.000 kr.20.600.000 kr.101.2 m2203.557 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar 7
Opið hús:30. maí kl 13:30-14:00
Skoða eignina Áshamar 7
Áshamar 7
221 Hafnarfjörður
87.7 m2
Fjölbýlishús
312
781 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Skoða eignina Seljabraut 74
Bílskúr
Skoða eignina Seljabraut 74
Seljabraut 74
109 Reykjavík
123.7 m2
Fjölbýlishús
4
565 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsbrún 2
Skoða eignina Dalsbrún 2
Dalsbrún 2
810 Hveragerði
99 m2
Raðhús
312
740 þ.kr./m2
73.300.000 kr.
Skoða eignina Bjarkardalur 2
Skoða eignina Bjarkardalur 2
Bjarkardalur 2
260 Reykjanesbær
96.7 m2
Fjölbýlishús
312
661 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin