Föstudagur 1. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 29. júlí 2025
Deila eign
Deila

Áshamar 52

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
103.8 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
866.089 kr./m2
Fasteignamat
71.700.000 kr.
Brunabótamat
62.200.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2526613
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
7
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegar
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! ***FIMM HERBERGJA ÍBÚÐ***

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali kynnir bjarta og fallega innréttaða 103,8 fermetra 5 herbergja íbúð (307) á þriðju hæð í nýlegu lyftuhúsi. Gólfhiti er í allri íbúðinni ásamt sérgeymslu sem er staðsett í sameign hússins. Sérinngangur er í íbúð af svalagangi.

Nýtt harðparket frá Parka er á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi og þvottahús en þar eru fallegar 60x60 gráleitar flísar. Gólfsíðir gluggar með vönduðum gardínum frá Z-brautum. Stílhreinar stórar svalir (29 fermetra) með viðarklæddu svalagólfi. Fallegar innréttingar með góðu skápaplássi. Eldhús er stílhreint með eldhúseyju og innbyggðum tækjum. Rúmgott baðherbergi með fallegum flísum. Um er að ræða afar snyrtilega og vel útbúna íbúð með góðu og auknu skápaplássi og stórum gólfsíðum gluggum. Þar sem íbúðin er L-laga að þá skapast mikill vinnufriður á milli staða í íbúðinni. Húsfélagið er vel rekið þar sem búið er að setja upp hleðslustöðvar fyrir átta rafmagnsbíla.

Fasteignamat næsta árs (2026) er kr. 78.100.000,-


Nánari lýsing eignar:
Forstofa/hol: Harðparket á gólfi og góður fataskápur.
Gangur: Harðparket á gólfi. Fata- og skóskápar.
Stofa/borðstofa: Björt með stórum gólfsíðum gluggum með nýlegum vönduðum sérsniðnum gardínum frá Z-brautum. Útgengt á stórar 29 fermetra L-laga svalir sem snúa til austurs með fallegu útsýni. 
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og hvítri stílhreinni eldhúsinnréttingu með eyju. Innbyggður kæliskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél. Eyja með spanhelluborði, bakaraofni og eyjuháfi. Opnanlegur gluggi er í eldhúsi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með stórum skápum og harðparketi á gólfi. Útgengt á svalir. 
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Svefnherbergi IV: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með opnanlegum glugga. Flísar á gólfi og hluta veggja (60x60). Rúmgóð flísalögð sturta. Góðar innréttingar. Baðherbergið með gólfhita, handklæðaofni og upphengdu salerni.
Þvottahús: Er staðsett inn af baðherbergi. 
Sérgeymsla: Sérgeymsla er í sameign í kjallara hússins. 
Sameign: Vagna og hjólageymsla er í kjallara hússins. 
Bílastæði: Húsfélagið hefur sett upp 8 stæði fyrir rafmagnshleðslur. Bílastæðin eru sameiginleg. Fjögur stæði fyrir hreyfihamlaða eru við húsið. 

Húsfélagið: Öflugt húsfélag er starfrækt í húsinu og í góðu samstarfi við Áshamar 54. Húsfélagið er að vinna í afmarka bílastæðin með hvítum línum svo að plássið nýtist betur. 

Staðsetning og þjónusta: Stutt í skóla, leikskóla og þjónustu. Nýr leikskóli í næstu götu. Skarðshlíðarskóli og leikskóli eu í 10 mínútna gönguleið frá. Hraunvallaskóli og leikskóli eru í 5 mín akstri frá. Góðar gönguleiðir og frábær útivistarsvæði eru í næsta nágrenni, m.a. Hvaleyrarvatn, Ásfjall og Ástjörn. Stutt er í verslanir og aðra þjónustu. 

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali, í síma 849-0672 / heimir@fastlind.is.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/11/202361.000.000 kr.79.000.000 kr.103.8 m2761.078 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 506
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 506
221 Hafnarfjörður
110.8 m2
Fjölbýlishús
413
784 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 4B íb.301
Bílastæði
Apalskarð 4B íb.301
221 Hafnarfjörður
114.2 m2
Fjölbýlishús
413
753 þ.kr./m2
86.000.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 6 íb602
Bílastæði
Áshamar 6 íb602
221 Hafnarfjörður
114.9 m2
Fjölbýlishús
413
803 þ.kr./m2
92.300.000 kr.
Skoða eignina Daggarvellir 9
Skoða eignina Daggarvellir 9
Daggarvellir 9
221 Hafnarfjörður
133.9 m2
Fjölbýlishús
514
701 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin