Laugartún 19a - 4ra herbergja endaraðhúsaíbúð á einni hæð á Svalbarðseyri - stærð 96,7 m²
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Forstofa er með flísum á gólfi og nýlegri útidyrahurð. Eldhús, upprunaleg viðarlituð innrétting með ljósri bekkplötu og þiljum á milli skápa. Korkur er á gólfi. Stofa og hol eru í opnu rými þar sem parket er á gólfi og gluggar til tveggja átta. Svefnherbergin eru þrjú, tvö með dúk á gólfi og eitt með parketi. Fataskápar eru í öllum herbergjum. Úr hjónaherberginu er hurð út til suðurs á timbur verönd. Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, hvít innrétting, wc og hlaðin og flísalögð sturta. Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir eignina, þar er lakkað gólf, innrétting með vask og opnanlegur gluggi. Geymsla er inn af þvottahúsinu með lökkuðu gólfi og hillum. Hleri er í loftinu upp á geymsluloft.
Annað - Gler var endurnýjað í gluggum kringum árið 2020. - Útidyrahurðar í forstofu og þvottahús voru endurnýjaðar fyrir um 3 árum. - Fyrir framan íbúðina er steypt stétt / plan með hitalögnum í. - Stutt í leik- og grunnskóla.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gluggar eru upprunalegir - Gler var endurnýjað kringum 2020
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
15,715
Upphitun
Hitaveita - sér mælir
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Eignin er að hlutatil í upprunalegu ástandi.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Laugartún 19a - 4ra herbergja endaraðhúsaíbúð á einni hæð á Svalbarðseyri - stærð 96,7 m²
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Forstofa er með flísum á gólfi og nýlegri útidyrahurð. Eldhús, upprunaleg viðarlituð innrétting með ljósri bekkplötu og þiljum á milli skápa. Korkur er á gólfi. Stofa og hol eru í opnu rými þar sem parket er á gólfi og gluggar til tveggja átta. Svefnherbergin eru þrjú, tvö með dúk á gólfi og eitt með parketi. Fataskápar eru í öllum herbergjum. Úr hjónaherberginu er hurð út til suðurs á timbur verönd. Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, hvít innrétting, wc og hlaðin og flísalögð sturta. Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir eignina, þar er lakkað gólf, innrétting með vask og opnanlegur gluggi. Geymsla er inn af þvottahúsinu með lökkuðu gólfi og hillum. Hleri er í loftinu upp á geymsluloft.
Annað - Gler var endurnýjað í gluggum kringum árið 2020. - Útidyrahurðar í forstofu og þvottahús voru endurnýjaðar fyrir um 3 árum. - Fyrir framan íbúðina er steypt stétt / plan með hitalögnum í. - Stutt í leik- og grunnskóla.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.