TIL SÖLU ER JÖRÐIN URÐARHOLT VIÐ ÁRNES Í SKEIÐA- OG GNÚPVERJAHEREPPI. EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST GOTT LAND SEM ER MEÐ MIKIL TÆKIFÆRI TIL UPPBYGGINGAR.
Valhöll fasteignasala Síðumúla 27, Sími: 588-4477 og Snorri Snorrason. Lg.fs. Sími: 895-2115 eða snorri@valholl.is, kynna til sölu jörðina Urðarholt sem er 33 hektara að stærð ásamt 220 m² einbýlishúsi byggt 2018.
. Á skipulagi er byggingareitur fyrir vélaskemmu og eða hesthús/útihús.
Jörðin er staðsett á móti Árnesi við Þjórsárdalsveg. Lóðir hafa verið skipulagðar á svæðinu fyrir atvinnuuppbyggingu og ný brú væntanleg á Þjórsá og mikil uppbygging á svæðinu.
Gott aðgengi er að jörðinni og auðvelt að skipuleggja hana fyrir ýmiskonar atvinnurekstur eða íbúðarbyggð. Á næstu lóðum hafa verið skipulögð um 5 hektara bíli og atvinnurekstur.
Einbýlishús með innbyggðum bílskúr byggt úr timbri árið 2018. Húsið er klætt að utan með litaðri báruklæðningu bæði veggir og þak. Aukin lofthæð (um 2,7m) er í húsinu og upptekin loft í stofu og eldhúsi. Parketflísar eru á öllum gólfum og gólfhiti er í öllum gólfum hússins.
Húsið skiptist í 170,8 fm íbúðarhús og 49,2 fm bílskúr. Þakskyggni er meðfram allri norður hlið hússins og um 50 fm timburverönd með skjólveggjum og heitum potti.Anddyri, rúmgott með fatahengi.
Stofa, borðstofa og eldhús eru samliggjandi (51,5 fm), með uppteknu lofti og útgengi um stóra rennihurð út á suðurverönd með heitum potti. Í eldhúsi er rúmgóð eyja með stóru spansuðuhelluborði og stórri innréttingum með ofni og örbylgjuofni frá Simens.
Hol og gangur, (16,9 fm) með aukinni lofthæð.
Herbergi I, (9,6 fm)
Herbergi II, (11 fm)
Herbergi III, (12,2fm)
Hjónaherbergi, (22,9 fm), rúmgóður fataskápur.
Baðherbergi, rúmgott með innréttingu, handklæðaofn, walkinsturtu og vegghengdu wc. Útgangur er úr baðherbergi út að heitum potti á verönd.
Þvottahús, (10,1 fm) skápar og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaskur í borði. Innangegnt inn í bílskúr er úr þvottahúsi.
Bílskúr, rafdrifin bílskúrshurð og gönguhurð, rafmagn vatn og gólfhiti.
Á svæðinu er góð vatnsveita og hitaveita með nægu heitu vatni. Trjám hefur verið planta við húsið.
Í Árnesi er grunnskóli sveitarfélagsins, sundlaug, bensínstöð ofl.
Allar nánari upplýsingar veita:
Snorri Snorrason löggiltur fasteignasali í síma
895-2115 eða á netfanginu snorri@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.