Gylfi Jens og Guðbjörg Helga löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna Skúlagötu 40B, 101 Reykjavík.Björt og vel skipulögð 4-5 herbergja penthouse íbúð á 4. og efstu hæð í góðu fjölbýlishúsi með lyftu fyrir 60 ára og eldri við Skúlagötu 40B í Reykjavík. Það er aukin lofthæð og stórir gluggar í íbúðinni sem gefa góða birtu og einstakan sjarma. Svalir eru til austurs og sérstæði er í upphitaðri bílageymslu. Eignin er skráð 154,9 fm hjá Fasteignaskrá, þar af íbúðarhluti 139,9 fm og sérstæði í bílageymslu er skráð 15,0 fm. Tvær geymslur eru í íbúðinni sem liklega eru ekki allar í fm og síðan leigir eigandi geymslu af húsfélaginu og er það gjald rukkað með hússjóði. Aðeins tvær íbúðir eru á hæðinni og eru sameiginlegar þaksvalir til vesturs milli íbúðanna (sameign allra). Húsið er með 10 íbúðum en húsfélagið samanstendur af húsum 40, 40A og þessu húsi 40B og á sameiginlegri lóð sem er eignarlóð eigendanna, snjóbræðsla er á lóðinni og einnig á Hverfisgötu, en ekki á stuttum hluta Barónstígs þar á milli. Í sameign hússins sem er talsvert meiri en gengur og gerist er aðstaða með heitum potti, sauna og þrektækjum, samkomusalur og fleira sem talið er upp hér á eftir.
**SÆKTU SÖLUYFIRLIT HÉR MILLILIÐALAUST** ** 3-D: SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD OG MÁTAÐU ÞIG OG HÚSGÖGNIN ÞÍN MEÐ MÆLISTIKUNNI - SMELLTU HÉR** NÚVERANDI SKIPULAG: Forstofa, 2 gangar, stofa, sjónvarpsstofa, eldhús, baðherbergi, 2 herbergi, þvottaherbergi og 2 geymslur innan íbúðar. Sérstæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:Gólfefni íbúðar er parket fyrir utan baðherbergi og þvottahús þar sem eru flísar.
Forstofa: Rúmgóð með fataskápum.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum skáp.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með fataherbergi.
Geymsla 1: Er innaf fataherbergi í hjónaherbergi (sjá teikningu).
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting með granítborðplötu, upphengt salerni, baðkar og flísalögð sturta. Handklæðaofn.
Sjónvarpsstofa: Mjög rúmgóð með glerþaki yfir að hluta. Útgengt á hellulagðar svalir til austurs.
Geymsla 2: Er innaf sjónvarpsstofu (sjá teikningu).
Stofa: Afar stór og björt með mikilli lofthæð.
Eldhús: Er með svartlakkaðri innréttingu með graníti á borðum. Bakaraofn, helluborð og vifta. Stæði fyrir uppþvottavél. Góð borðaðstaða er í eldhúsi við útbyggðan glugga.
Þvottahús: Er innaf eldhúsi. Stæði fyrir þvottavél og þurkara. Hillur og innrétting með vaski.
Sérbílastæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Stæðið er nr. B24.
Núverandi eigandi er með leigusamning við húsfélag um geymslu nr. 13 sameiginlegu rými í kjallara. Leigugjald er kr. 2.500,- á mánuði.
SAMEIGN HÚSA NR. 40, 40A OG 40B Þvottaaðstaða fyrir bílastæðaeigendur í bílastæðahúsi hússins.
Sameiginleg hjólageymsla í bílastæðahúsi.
Sameiginleg bílastæði í porti milli húsanna með innkeyrslu frá Barónsstíg og einnig eru stæði neðan húss nr. 40 þar sem ekið er inn í bílastæðahús sem er á jarðhæð.
Sameiginlegt þvotta þurrkherbergi, stórt og með lökkuðu gólfi og snúrum (hjá húsi 40B)
SPA -aðstaða: Líkamsræktaraðstaða með heitum potti og sauna (hjá húsi nr 40)
Samkomusalur (á 2. hæð nr 40) sem er leigður út á mjög hóflegu verði (10.000)
Húsvarðaríbúð sem er í útleigu (nr 40) til aðila sem sér um þrif á sameign.
Innangegnt er á milli húsanna þriggja um bílastæðahús. Lyklakóða eða rafmagnsdropa þarf til að opna dyr.
Lóð: Öflugt snjóbræðslukerfi er á bílaplönum og göngustígum lóðarinnar. Sameignilegir grasblettir.
Ruslageymslur: Eru í bílastæðahúsi við inngang í hvert þriggja húsanna.
FRAMKVÆMDASAGANýlega var húsið múrviðgert og málað að utan og þak, þakrennur og niðurföll endurnýjuð (húsfélag)
Búið er að endurnýja alla hitaveituofna í íbúðinni (séreign)
Lóðin er falleg með tyrfðum flötum og hellulögðum stéttum með hitalögnum undir og næg bílastæði eru á lóð hússins Barónsstígs megin og einnig neðan húss.
Búið er að endurnýja gler að hluta í íbúðinni og sett sólarvarnargler.
Fyrir áhugasama þá er Félagsmiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar í fimm mínútna göngufjarlægð að Lindargötu 59, en þar er hægt að fá heitan mat í hádeginu gegn hóflegu gjaldi og ýmsa aðra félagsþjónustu sjá nánar hér: https://reykjavik.is/lindargata-59
Samantekið er þetta afar björt og skemmtileg 4-5 herbergja glæsileg penthouse íbúð með aukinni lofthæð á vinsælum stað í miðborginni og einkabílastæði í lokaðri bílageymslu. Penthouse íbúð þar sem tilfinningin er eins og í einbýli og það í hjarta Reykjavíkur.
ALLAR UPPLÝSINGAR VEITA:
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður í netfanginu gylfi@remax.is og síma 822 5124
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu gudbjorg@remax.is og síma 897 7712