Laugardagur 10. maí
Fasteignaleitin
Skráð 6. maí 2025
Deila eign
Deila

Jöfursbás 11D

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
55.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
50.515.000 kr.
Fermetraverð
911.823 kr./m2
Fasteignamat
49.550.000 kr.
Brunabótamat
35.200.000 kr.
ÞH
Þröstur Heiðar Þrastarson
Tengiliður seljanda
Eignir í sölu
Byggt 2021
Lyfta
Fasteignanúmer
F2512275
Húsgerð
Fjölbýlishús
Svalir

Eignin skiptist í anddyri, eldhús / borðstofu / stofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi Anddyri er flísalagt með skáp og fatahengi. Eldhús, borðstofa og stofa eru í björtu alrými með parket á gólfi.

Afar vel skipulögð 3ra herbergja íbúð með sérinngangi við Jöfursbás 11, Gufuneshverfi, Grafarvogi.

* Fallegt útsýni
* Verönd út frá stofu til suðurs
* Húsið var byggt 2022
* Frábær fyrstu kaup
* Kaupendur á aldrinum 18-40 ára eru í forgangi samkv. kvöð á eigninni.

Nánari upplýsingar veita:

Birt stærð eignar samkv. Fasteignaskrá Íslands er 55,40 m2.

Eignin skiptist í anddyri, eldhús / borðstofu / stofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi
Anddyri er flísalagt með skáp og fatahengi.
Eldhúsborðstofa og stofa eru í björtu alrými með parket á gólfi. Í eldhúsi er Innrétting með tengi fyrir uppþvottavél, bakarofn, helluborði og viftu.
Út frá stofu er útgengt út á verönd til suðurs.
Baðherbergi er með innréttingu með handlaug og skúffum, upphengdu wc, "walk-in" sturtu, speglaskáp og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Sameiginleg hjólageymsla og þvottahús er á jarðhæð.

Í sameign er einnig vinnuaðstaða/veislusalur sem íbúar geta leigt.
Íbúðirnar hafa haft afnot af matjurtargarði sem Reykjavíkurborg lánar Jöfursbás 11. 

 Frá lóðinni er glæsileg sjávarsýn og útsýni yfir Geldinganes og Viðey.  Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi.
 
Íbúðarhúsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leikvöll, boltavelli og grasfleti. Torgið verður við aðalinngang húsanna við sameiginleg rými íbúa. Leik- og dvalaraðstaða er norðan megin gegnt ströndinni þar sem gert er ráð fyrir sparkvelli og götuboltasvæði. Tekið er tillit til sólarátta og byggð skipulögð þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli fyrir veðri og vindum. Við innganginn er sólríkt miðlægt torg fyrir framan sameigileg rými þar sem er veislusalur/kaffihús/vinnurými, sameiginlegt þvottahús og pósthús/búr fyrir aðsendan póst og vörur. Við torgið er leiksvæði fyrir yngri börn en sparkvöllur og götuboltasvæði er í garði á móti sjó. Á torginu er einnig hjóla- og vagnageymsla.  Handan götunnar eru matjurtagarðarfyrir íbúa og sérstök deilibílastæði. Matjurtagarðarnir verða til afnota fyrir íbúa til ræktunar fyrir þá sem það kjósa. Þar verður heimilt að gera vermireiti og gróðurskýli og er garðurinn ýmisst 20 fm. eða 40 fm.

Í Gufunesi verður blönduð byggð fyrir íbúðir, smærri atvinnurekstur, skapandi iðnað, menningu, menntun, sýningar- og atburði, ferðamannaiðnað og sjálfbærar samgöngur. Gufunesið verður þannig einstakt hverfi í borginni þar sem iðnaðarmannvirki, manngert landslag, afþreying- og útivist og stórfengleg fjallasýn við sjávarsíðu mynda órjúfanlega heild.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/09/202115.250.000 kr.33.374.000 kr.55.4 m2602.418 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Krummahólar 10
Opið hús:13. maí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Krummahólar 10
Krummahólar 10
111 Reykjavík
71.2 m2
Fjölbýlishús
211
740 þ.kr./m2
52.700.000 kr.
Skoða eignina Orrahólar 7
Bílastæði
Opið hús:11. maí kl 17:00-17:45
Skoða eignina Orrahólar 7
Orrahólar 7
111 Reykjavík
72.5 m2
Fjölbýlishús
211
716 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Asparfell 6
Opið hús:13. maí kl 17:15-17:45
Skoða eignina Asparfell 6
Asparfell 6
111 Reykjavík
59.9 m2
Fjölbýlishús
211
830 þ.kr./m2
49.700.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 12
Opið hús:15. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Grensásvegur 12
Grensásvegur 12
108 Reykjavík
51.2 m2
Fjölbýlishús
111
1014 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin