EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA.
Bjarkardalur 14a.
Gullfalleg 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð, ásamt góðum bílskúr í nýlegu (2020) 4ra íbúða húsi. Eignin er alls 108,4 fm. og skiptist þannig að íbúðin er 86,3 fm. og bílskúrinn er 22,1 fm. Glæsileg u.þ.b. 40 fm. suður-sólverönd með heitum potti og útigeymslu/skúr fyrir garðhúsgögn. Hiti/snjóbræðsla í bílaplani, varmaskiptir á neysluvatni o.fl. ofl.
Sérinngangur á flísalaða forstofu/hol með fataskáp. Flísalagt forstofu/barnaherbergi með fataskáp. Baðherbergið er flísalagt, með "walk in" sturtu, innréttingum, vegghengdu salerni og glugga. Gólfhiti og handklæðaofn á baði. Eldúsið er flísalagt með fallegri viðarinnréttingu frá Nobilia, flísum á milli skápa og vönduðum tækjum (spam helluborð, blástursofn og vifta). Innbyggður ísskápur í eldhúsi, aðstaða fyrir uppþvottavél, Maganite "stein" borðplötur og fjarstýrð dimmanleg lýsing undir efri skápum. Stofa og borðstofa eru samliggjandi, parketlagðar, með stórum gluggum og útgangi á mjög stóra og fallega timburverönd. Gler í efsta hluta skjólveggjar, lýsing, heitur pottur (hitaþráður í rörum svo hann nýtist allt árið) og skúr fyrir sólhúsgögn/garðáhöld. Hjónaherbergið er rúmgott, parketlagt og með 5Xfataskápum. Gluggar á tvær hliðar. Þvottahúsið er flísalagt, með miklum innréttingum, skolvaski, innisnúrum og loftræsingu. Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð. Í gegnum þvottahúsið er innangengt í bílskúrinn, sem er mjög snyrtilegur með 3ja mm Epoxy kvarts á gólfi, heitu og köldu vatni og fjarstýrðum opnara á bílskúrshurð (2 fjarstýringar og innistjórnun).
Annað: Allar innréttingar eru teiknaðar af hönnuði hússins og koma frá þýska framleiðandanum Nobilia. Fataskápar í forstofu/holi og svefnherbergjunum eru frá GKS. Innihurðir eru hvítar yfirfelldar hurðir frá Parka. Gólfefni eru ítalskar 60x60 flísar frá Parka á forstofu, holi, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi. Parket á stofum og herbergjum er harðparket frá Parka. Smekkleg ljós og lýsing frá Lumex. Sérafnotaréttur af 113 fm. spildu af baklóð hússins fylgir þessari íbúð skv. eignaskiptasamningi.
- Sérinngangur.
- Fallegar innréttingar og gólfefni.
- Glæsilegur ca. 40 fm. sólpallur með lýsingu.
- Heitur pottur með lýsingu.
- Geymsluskúr fyrir garðstóla/áhöld.
- Varmaskiptir á heitu neysluvatni.
- Innangengt í bílskúr.
- Sérbílastæði.
- Hiti í bílaplani.
Frábær staðsetning, stutt í nýja Stapaskóla. Einungis 20 mín akstur frá höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.