Til leigu
Stórglæsilegt og einstaklega vandað einbýlishús til langtíma leigu á einni hæð og innangengt í bílskúr innst í rólegum botnlanga við Gnitakór.Húsið stendur á glæsilegri 877 fm útsýnislóð með óskertu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið, Snæfellsjökul og Esjuna.
Mikil lofthæð, stórir gólfsíðir gluggar og fallegur arinn. Rafmagnskerfi stýrir ljósum og gluggatjöldum í stofu og borðstofu. Stimpilsteypt bílaplan. Steyptir skjólveggir, timburverönd með heitum potti og fallegri lýsingu. Stofa, setustofa, sjónvarpsstofa og eldhús samtals yfir 100 fm.
Í húsinu eru tvenn svefnherbergi.
Í eldhúsi er granítborðplata, stór eyja, vönduð Miele tæki, örbylgjuofn, kaffivél, ísskápur og uppþvottavél. Hornsæti við glugga með útsýni yfir Esjuna.
Baðherbergi með baðkari og sturtu.
Húsið er laust við undirritun leigusamnings.
Leigutími getur verið allt að 3 til 4 ár.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is