Miklaborg kynnir til sölu:
Einstaklega huggulegt og fallegt sumarhús á einum besta útsýnisstað á svæðinu, staðsett við Fornastekk í landi Bjarteyjarsands í Hvalfirði.
Húsið stendur á 3.724 m² leigulóð í kyrrlátu og fallegu umhverfi, aðeins um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Húsið er skráð skv. FMR 66,9 m² og skiptist í forstofu, baðherbergi, tvö góð svefnherbergi, bjarta stofu og eldhús, auk svefnlofts og geymslu.
Eldhús er opið inn í stofu með stórum gluggum og mikilli lofthæð. Flísar eru á gólfi, viðarinnrétting og góð tæki.
Baðherbergi er með sturtuklefa og lítilli, snyrtilegri innréttingu.
Í svefnherbergjum er parket á gólfi.
Útisvæði eignarinnar er sérlega glæsilegt. Stór og fallegur sólpallur með heitum potti, útisturtu og stórbrotnu útsýni.
Veröndin og pallurinn eru einstaklega snyrtileg og vel búin með m.a. garðhúsi, grillaðstöðu, gróðurkassa, þvottasnúru og fánastöng.
Á veröndinni er jafnframt óskráð garðhús sem ekki telur til fermetra.
Falleg útilýsing er í þakkanti og á sólpalli sem skapar notalega stemningu á kvöldin.
Hiti er í gólfum í húsinu sem stendur á steyptum grunni.
Hitaveita og ljósleiðari eru til staðar og símahlið til þess að komast inn á svæðið.
Bílastæði við húsið með rafhleðslustöð og upplýstum göngustíg að eigninni.
Öryggiskerfi, skynjarar og myndavélar eru í húsinu.
Lóðarleigan fyrir árið 135.000kr og gjald fyrir sumarhúsafélagið á svæðinu eru 30.000kr
Allar nánari upplýsingar veitir Sæþór Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 855-5550 eða saethor@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 12/07/2013 | 13.295.000 kr. | 16.300.000 kr. | 66.9 m2 | 243.647 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
805 | 150,1 | 129 | ||
1053 | 94 | 52,9 | ||
1053 | 81 | 47,7 | ||
600 | 168 | 54,7 | ||
600 | 73 | 53,9 | ||
450 | 249,5 | 49,5 |