Móeiður og Miklaborg kynna í einkasölu: Maltakur 1b, virkilega bjarta og fallega íbúð með sérinngangi, stórum sólríkum svölum á einum eftirsóttasta stað Garðabæjar.
Falleg og rúmgóð 82,9 fm, 2ja herbergja íbúð á 1. hæð (2.hæð séð frá garði) með sérinngangi, í Akralandinu í Garðabæ.
Eignin skiptist í anddyri, alrými með stofu, skrifstofukrók og eldhúsi með eyju, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is
Nánari lýsing
Íbúðin skiptist í: forstofu, hjónaherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús með eyju, borðstofu, skrifstofukrók og stofu. Úr eldhúsi er gengið út á stórar suðursvalir með miklu útsýni yfir Garðabæinn.
Forstofa: Komið er inn um sérinngang í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskápum sem ná upp í loft.
Stofa og borðstofa: Bjartar og stórar með gegnheilu eikarparketi á gólfi.
Eldhús: Eikarinnrétting með hvítum borðplötum. Helluborð með viftu yfir. Tengi er fyrir uppþvottavél og góður gluggi í eldhúsinu. Útgengt er á suðursvalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, sturta, eikarinnrétting með hvítri borðplötu og salerni er upphengt.
Svefnherbergið: Mjög rúmgott með parketi á gólfi og stórum fataskápum sem ná upp í loft.
Þvottaherbergi: Innan íbúðar með flísum á gólfi og hvítri innréttingu með vaski. Tengi er fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sér geymsla í sameign og telur 8,9 fm auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu.
Hleðslustöðvar eru fyrir framan hús. Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í Akrahverfinu í Garðabæ.
Leikskóli, grunnskóli, fjölbrautarskólinn í Garðabæ og íþróttasvæði í göngufjarlægð.
Verslun og þjónusta er í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 19/02/2010 | 21.850.000 kr. | 18.500.000 kr. | 82.9 m2 | 223.160 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
225 | 83,1 | 74,9 | ||
225 | 63,7 | 67,9 | ||
210 | 82,9 | 74,9 | ||
225 | 63,3 | 67,9 | ||
200 | 90,3 | 77,9 | ||
200 | 73,6 | 67,9 |