Sunnudagur 24. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 4. okt. 2024
Deila eign
Deila

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
118.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
163.900.000 kr.
Fermetraverð
1.386.633 kr./m2
Fasteignamat
10.400.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Karólína Íris Jónsdóttir
Karólína Íris Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
50 ára og eldri
Fasteignanúmer
2532687
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Kynnum til sölu nýjar og einstaklega vandaðar íbúðir í Hlíðarhorni. Um er að ræða 33 íbúðir við Valshlíð 3 í Reykjavík á suðvesturhorni byggingarreits. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar í janúar 2025.

Íbúð 406 er 118,2 fm þar af 11,9 fm geymsla. Um er að ræða bjarta og glæsilega 5 herbergja endaíbúð á 4. hæð. Glæsilegt útsýni yfir Vatnsmýrina og Þingholtin og þaksvalir sem snúa í vestur/austur. Íbúðin skiptist í anddyri/gang, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með góðum vestursvölum, 4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um innri garð. Byggingin er miðsvæðis í Reykjavík í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Stutt er því í alla helstu þjónustu, samgöngur, skóla, íþróttaaðstöðu, iðandi mannlíf og stóra vinnustaði.

Í Hlíðarhorni eru 195 íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Allar íbúðir eru með svölum, þaksvölum eða sérafnotareitum á jarðhæð og hannaðar til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra innan íbúða. Allt húsið er klætt að utan með álklæðningum með gluggum úr ál/tré og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar.

Allar innréttingar íbúða eru vandaðar frá Nobilia/GKS og eldhústæki eru af tegundunum Siemens og Witt. Íbúðir skilast með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, spanhelluborði og blástursofni, blöndunartækjum frá ítalska framleiðandanum Mariner, Berry Alloc gólfefni og flísum frá Álfaborg. Innréttingarþema hverrar íbúðar er fyrirfram ákveðið. Íbúðir eru allar full-loftræstar.

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Nánari lýsing íbúðar skv teikningu:

Anddyri: Rúmgott með fataskáp. Gengið inn gang sem opnast í alrými.

Eldhús: Satín-hvít mött innrétting frá Nobilia, stór eyja með vaski og ljós quartz-steinn á borðum og milli skápa. Vandað og stílhreint í einstaklega fallegu alrými.

Stofa/borðstofa: Opið og bjart alrými með útgengi á rúmgóðar vestursvalir og útgengi á stórar þaksvalir þar sem gert er ráð fyrir heitum potti.

Svefnherbergi I: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum.

Svefnherbergi II: Rúmgott með fataskáp.

Svefnherbergi III: Rúmgótt með fataskáp.

Svefnherbergi IV: Með fataskáp.

Baðherbergi: Satín-hvít mött innrétting og speglaskápur, “walk-in” sturta með gleri, handklæðaofn og upphengt salerni. Innbyggð blöndunartæki í sturtu. Ljósar steinflísar á gólfi og veggjum skv þemalýsingu.

Þvottaherbergi: Inn af baðhergi. Ljósar innréttingar og þvottavél og þurrkari í vinnuhæð. Flísar á gólfi.

Geymsla: Sérgeymsla íbúðar er í kjallara ásamt sameiginlegum hjóla og vagnageymslum.

Hönnunarþema íbúðar 406: Mjöll 3

Íbúðin er skráð fyrir 50 ára og eldri.

Athygli kaupanda eru vakin á því að fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu S8 ehf. sem er jafnframt aðalverktaki og eigandi fasteignarinnar.

Fyrirvarar

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smyrilshlíð 7
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 7
Smyrilshlíð 7
102 Reykjavík
153.8 m2
Fjölbýlishús
32
975 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Bílastæði
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
129.4 m2
Fjölbýlishús
322
1143 þ.kr./m2
147.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Bílastæði
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
137.1 m2
Fjölbýlishús
413
1166 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1A íb.708
Grensásvegur 1A íb.708
108 Reykjavík
115.4 m2
Fjölbýlishús
312
1341 þ.kr./m2
154.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin