Drekagil 28 íbúð 702 Rúmgóð, björt og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á efstu hæð með lyftu í fjölbýli á góðum stað í Giljahverfi. Glæsilegt útsýni þar sem fjallahringurinn fær að skarta sínu fegursta. Eignin er laus til afhendingar fljótlega.
Nánari lýsing:
Forstofa, parket á gólfi og fatahengi. Hol/gangur, parket á gólfi. Hjónaherbergið er rúmgott og fínt, parket á gólfi og stór hvítur fataskápur. Barnaherbergið er með parketi á gólfi og fataskáp. Baðherbergið er mikið endurnýjað, flísar á gólfi og veggjum nánast uppí loft. Upphengt WC, góð sturta með glervegg. Fín innrétting og gluggi með opnanlegu fagi. Eldhúsið er með fallegri, nýlegri spónlagðri innréttingu. Flísar á gólfi í eldhúsi sem og á milli skápa. Borðkrókur. Stofan er rúmgóð og björt og úr stofu er geggjað útsýni ! Parket á gólfi og úr stofu er farið út á svalir til vestur. Geymsla í íbúð, parket á gólfi og hillur.
Annað: - Sameiginlegt þvottaherbergi er á hæðinni sem tilheyrir þeim íbúðum sem þar eru, góð innrétting þar og þar er farið út á góðar yfirbyggðar þurrksvalir. - Íbúðin er í suðurenda og með hreint út sagt geggjuðu útsýni, sérstaklega til suðurs og vesturs. - Sérgeymsla er í kjallara. Lakkað gólf og hillur. - Hjóla- og vagnageymsla er í sameign. - Innihurðir, endurnýjaðar. - Íbúðin er mikið sér á hæðinni.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.