Miðvikudagur 4. júní
Fasteignaleitin
Opið hús:04. júní kl 17:00-17:30
Skráð 2. júní 2025
Deila eign
Deila

Miklabraut 48

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
175.5 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
711.681 kr./m2
Fasteignamat
96.900.000 kr.
Brunabótamat
77.550.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1946
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2029804
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Rafmagnstöflur eru nýlegar, en huga þarf að rafmagnstenglum.
Frárennslislagnir
Skólp og dren var endurnýjað árið 2016.
Gluggar / Gler
Upprunalegir. Skv. seljanda þá er vitað um að einn gluggi í íbúðinni þarfnast viðgerða fyrr en varir.
Þak
Decra þakskífa var sett á húsið árið 2019.
Svalir
Já, suður svalir
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: 

Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Vel skipulögð og rúmgóð sex herberbergja 175.5 fm efri hæð í þessu fallega húsi að Miklabraut 48, 105 Reykjavík, í nálægð við Klambratún. Snyrtilegur sameignilegur inngangur er með risíbúðinni. 

Eignin skiptist í: Forstofu/hol, gestasalerni, 3-4 svefnherbergi, ( eitt herbergi var áður notað sem sér þvottahús - auðvelt að breyta aftur í þvotttahús )  tvær samliggjandi stofur, stórt og gott eldhús og baðherbergi.Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla íbúðar

Nánari lýsing eignarinnar:
Gengið er upp fallegt bogadregið stigahús að íbúðinni. Komið er inn í snotra flísalagða forstofu með fatahengi, en inn af henni er gestasnyrting. Út forstofunni er komið inn í rúmgott miðlægt hol, sem leiðir inn í eldhús, stofur og svefnherbergjagang. Íbúðin öll er með aukinni lofthæð og var endurnýjuð að hluta fyrir tveimur árum. Á gólfum er vandað eikarparket frá Agli Árnasyni, sem flæðir á milli herbergja, stofu og gangs. Baðherbergi, gestasnyrting, forstofa og eldhús eru flísalögð. Þrjár samliggjandi bjartar og rúmgóðar stofur snúa í suður. Stórir og stílhreinir gluggar veita inn birtu en þar blasir einnig við afar fallegur og gróinn, sameiginlegur garður. Milli stofanna þriggja eru tvöfaldar dyr, í einum þeirra eru rennihurðir, en í hinum hefur verið sett hljóðhelt þil (sem auðvelt er að fjarlægja). Sú stofa er nú notuð sem svefnherbergi og er búin vönduðum fataskápum. Út af þeirri stofu eru jafnframt suðursvalir. Eldhús er mjög rúmgott og bjart með um 20 ára gamalli innréttingu og flísum á gólfi. Á svefnherbergisgangi eru rúmgóðir skápar, en út frá honum eru þrjú svefnherbergi. Eitt er mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum, en tvö barnaherbergi minni. (Baðherbergið og eitt barnaherbergjanna eru án opnanlegra glugga (vita út að Miklubraut), en þar er loftræsing með viftu) Baðherbergi, líkt og gestaherbergi var endurgert frá grunni fyrir tveimur árum. Í þeim báðum eru vandaðar flísar. Í baðherberginu er nýtt baðkar með sturtu. Salerni, innréttingar og blöndunartæki voru sömuleiðis endurnýjuð. Íbúðin var nýlega máluð og alls staðar voru settir upp vegglistar og ný gereft, Hægt er að setja led-lýsingu í lista í stofum og forstofu.

Húsið hefur verið töluvert endurnýjað á undanförnum árum meðal annars:
Húsið var endursteinað og gluggar lagfærðir þar sem þufrti árið 2004.
Skólp og dren var endurnýjað árið 2016.
Decra þakskífa var sett á húsið árið 2019.

Húseignin Miklabraut 48 er einn matshluti og er kjallari, 2 hæðir og ris með fjórum íbúðum. Húsið er steinsteypt, þak er valmaþaki úr timbri, klætt steinflísum. Húsið Miklabraut 46 er skv. samþykktum teikningum spegilmynd hússins nr. 48 og því er hlutur húss nr. 48, 50%af heildarhúsinu við Miklubraut 46-48.

Að sögn eigenda, þá er tími er kominn til að huga að múrviðgerð á útidyratröppum. Það hefur verið rætt af nágrönnum og húsfélaginu, en ekkert verið ákveðið um það. Kaupendur munu taka við eigninni meðvituð um það.

Nánari upplýsingar veita:
Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali, í síma 661-6056 / gulli@remax.is
Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali, í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/08/202382.000.000 kr.100.000.000 kr.175.5 m2569.800 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heklureitur - íbúð 105
Bílastæði
Heklureitur - íbúð 105
105 Reykjavík
128.3 m2
Fjölbýlishús
4
958 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðargata 18B
3D Sýn
Hallgerðargata 18B
105 Reykjavík
142.4 m2
Raðhús
423
891 þ.kr./m2
126.900.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðargata 18C
3D Sýn
Hallgerðargata 18C
105 Reykjavík
146.3 m2
Raðhús
423
881 þ.kr./m2
128.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuteigur 23
Bílskúr
Skoða eignina Kirkjuteigur 23
Kirkjuteigur 23
105 Reykjavík
165.4 m2
Hæð
412
767 þ.kr./m2
126.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin