RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður/löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu:
Glæsilegt einbýlishús, ásamt innbyggðum bílskúr, á frábærum stað við Logasali 8. Húsið er staðsteypt og steinað að utan. Vel skipulagt hús með fjórum svefnherbergjum, rúmgóðum rýmum, aukinni lofthæð, innfelldri lýsingu, gólfhita og afgirtum grónum garði. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 220,6 fm, þar af er íbúðarrýmið 192,6 fm og bílskúrinn 28 fm. Húsið skiptist í forstofu, fjögur svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús og bílskúr.
** Húsið getur verið laust til afhendingar samhliða kaupsamning. Seljendur eru opnir fyrir því að taka eign upp í húsið. **
// BÓKIÐ EINKASKOÐUN Í SÍMA 696-0226 - ÞORSTEINN //Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgott rými. Flísar á gólfi og fataskápur.
Þvottahús: Inn af forstofu. Flísar á gólfi. Baðinnrétting undir þvottavél og þurrkara. Vinnuborð með vaski. Gluggi í rýminu.
Hol: Flísar á gólfi. Rýmið gæti verið hentugt sem sjónvarpsstofa.
Eldhús: Flísar á gólfi. Falleg eldhúsinnrétting með eyju. Granít borðplötur. Bakaraofn í vinnuhæð og spanhelluborð. Opnanlegur gluggi í eldhúsinu.
Stofa/borðstofa: Flísar á gólfi. Í samliggjandi rými með eldhúsi. Útgengt út á timburveröndina. Möguleiki að bæta við svefnherbergi í enda stofunnar.
Hjónaherbergi: Vínylparket á gólfi.
Svefnherbergi: Vínylparket á gólfi. Fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðinnrétting. Upphengt salerni. Baðkar, sturtuklefi og handklæðaofn. Gluggi í rýminu.
Svefnherbergi: Flísar á gólfi og fataskápur.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi. Uppghengt salerni og vaskur.
Efri hæð: Flísar á gólfi. 27,1 fm alrými.
Bílskúr: Innangengt úr þvottahúsi.
28 fm bílskúr með millilofti. Flísar á gólfi. Rafmagnshurðaopnari. Heitt og kalt vatn. Gönguhurð út í garð.
Annað:Innkeyrslan er hellulögð og með snjóbræðslu. Garðurinn er fallegur og snyrtilegur. Stór og rúmgóð timbuverönd, en útgengt er á veröndina frá stofunni. Kaldur geymsluskúr er á lóðinni.
Allar frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is