SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *EINSTÖK LÚXUS PENTHOUSE ÍBÚÐ Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM* *STÓRKOSTLEGT ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN, TIL SJÁVAR OG YFIR FALLEGT SKÓGLENDI*
Það er okkur hjá Spánareignum sannur heiður að fá að kynna þessa einstöku lúxus penthouse íbúð á einum eftirsóttasta staðnum á Las Colinas golfvellinum. Hér er um að ræða eign í algjörum sérflokki þar sem glæsileg hönnun, vandað efnisval, einstakur frágangur og stórbrotið útsýni renna saman í fullkomna heild.
Íbúðin er staðsett í glæsilegu lyftuhúsi og býður upp á tilkomumikið útsýni yfir margverðlaunaðan golfvöllinn, út til Miðjarðarhafsins og yfir fallegt skógi vaxið svæði sem umlykur Las Colinas. Hér getur þú notið bæði sólarupprásar og sólarlags í einstakri kyrrð og friðsæld.
LÝSING:Íbúðin skiptist í einstaklega rúmgóða og bjarta stofu með stórum gluggum sem tengja innirými vel við glæsilega stóra verönd í með óviðjafnanlegu útsýni yfir golfvöllinn, Miðjarðarhafið og friðsælt skógi vaxið landslag sem einkennir Las Colinas. Frá veröndinni er gengið upp á stórar þaksvalir með ennþá flottara 360 gráðu útsýni yfir Las Colinas svæðið.
Eldhúsið er opið við borðstofu og stofu og búið fyrsta flokks tækjum, þar á meðal vínkæli. Frá eldhúsi er útgengi út á aðra rúmgóða verönd þar sem er góð aðstaða til að grilla og borða úti.
Svefnherbergin eru þrjú og baðherbergin tvö. Hjónasvítan er glæsileg með sér baðherbergi, góðu fataherbergi og beinu útgengi út á svalir. Gólfhiti er á baðherbergjum og öll lýsing í íbúðinni er útfærð með dimmerum sem skapa einstaklega hlýlega og fallega stemningu.
Íbúðin afhendist fullbúin með öllum húsgögnum, húsbúnaði, heimilistækjum og fallegum útihúsgögnum. Hér hefur engu verið til sparað og eignin er tilbúin til notkunar frá fyrsta degi.
Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir eigninni ásamt tveimur rúmgóðum geymslum.
Á svæðinu er glæsilegur sameiginlegur sundlaugargarður með aðgengi að þremur sundlaugum, þar af ein innilaug. Einnig er líkamsrækt og góð aðstaða til heilsuræktar.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. 00354 893 2495 - adalheidur@spanareignir.is.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. 0034 615 112 869 - berta@spanareignir.is.Las Colinas Golf & Country Club hefur um árabil verið valið eitt besta golfsvæði Evrópu og besta golfsvæði Spánar. Svæðið er aðeins um eina klukkustund frá Alicante-flugvelli og býður upp á einstakan lífsstíl fyrir þá sem vilja aðeins það besta af því besta.
Íbúðin er einstaklega rúmgóð og vel skipulögð með þremur glæsilegum svefnherbergjum og tveimur vönduðum baðherbergjum. Stór og björt stofa tengist opnu hönnunareldhúsi með góðu skápaplássi, hágæða innréttingum og tækjum. Frá eldhúsi er úgengi á rúgóðar svalir með frábærri aðstöðu til að borða úti og horfa yfir fallega náttúruna sem umlykur Las Colinas golfsvæðið. Frá stofu er útgengi út á stórar svalir þar sem glæsilegt útsýni er yfir golfvöllinn og til sjávar og skapar fullkomið svæði fyrir afslöppun eða góðar samverustundir með fjölskyldu og vinum.
Íbúðin er seld fullbúin sérvöldum vönduðum húsgögnum, fallegum húsbúnaði og glæsilegum útihúsgögnum sem falla fullkomlega að hönnun eignarinnar. Hér getur nýr eigandi einfaldlega flutt inn og byrjað að njóta frá fyrsta degi á einum glæsilegasta stað Costa Blanca.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á lúxus og þægindi. Í íbúðinni eru meðal annars rafdrifin rúllugluggatjöld, dimmerar á lýsingu sem skapa hlýlega stemningu, vínkælir, hágæða heimilistæki, innbyggð loftkæling og hitakerfi auk gólfhita á baðherbergjum.
Allur frágangur ber vott um fyrsta flokks hönnun og gæði.
Eigninni fylgja tvær rúmgóðar geymslur og sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara sem gera hana sérstaklega hentuga jafnt til heilsársnota sem og til skemmri dvalar.
Það er einfaldlega allt við þessa eign sem fellur undir lúxus – allt frá hönnun, efnisvali og lýsingu yfir í staðsetningu og útsýni. Hér er um að ræða eign sem sjaldan kemur á markað og selst venjulega fljótt.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, þjónustumiðstöð, líkamsrækt, fjölbreyttri afþreyingu og einkastrandklúbbi á Campoamor ströndinni.
Glæsilegur golfvöllur, tennisvellir og fallegar göngu- og skokkleiðir um hið einstaka náttúruumhverfi Las Colinas.
Lífsstíll sem á sér fáa líka.
Í nágrenninu eru margir af bestu golfvöllum Costa Blanca, meðal annars La Finca, Campoamor, Las Ramblas og Villamartín. Aðeins um 10 mínútna akstur er á Campoamor ströndina og verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Þetta er eign fyrir þá sem vilja njóta lífsins til fulls, hvort sem er með langtíma eða skammtíma dvöl í huga.
Góð fjárfesting á einum eftirsóttasta stað Spánar.
Eftirspurn eftir penthouse íbúðum á Las Colinas er mikil og biðlistar eftir sambærilegum eignum geta verið allt að 2–3 ár. Hér gefst því einstakt tækifæri til að eignast eina glæsilegustu íbúð sem völ er á – tilbúna til afhendingar strax.
Verð: 1.150.000 EVRUR - 166.700.000 ISK miðað við gengi 1 Evra = 145ISK + kostnaður við kaupin.
Penthouse íbúð: 3 svefnherbergi • 2 baðherbergi • stórar útsýnissvalir • stæði í bílakjallara • tvær geymslur • fullbúin húsgögnum, húsbúnaði og útihúsgögnum.
Ofan á kaupverð leggst 11% IVA (spænskur virðisaukaskattur) og gera má ráð fyrir um 2-3% öðrum kostnaði vegna kaupa, eða samtals um 13-14%.
SKOÐUNARFERÐIRVið aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá árinu 2001 sem tryggir viðskiptavinum okkar þekkingu, öryggi og reynslu og bjóðum upp á einkafundi þar sem farið er yfir kaupferlið, fjármögnun og allt sem snýr að fasteignakaupum á Spáni.Nánari upplýsingar um fasteignakaup á Spáni má finna á
www.spanareignir.is.Kostnaður við kaupin
11% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir um 2-3% kostnaði vegna stimpilgjalda, lögfræðikostnaðar og annarra gjalda við kaupin, eða samtals um 13-14%.
Eiginleikar: Penthouse, einstakt útsýni, golfútsýni, sjávarútsýni, lyfta, bílakjallari, tvær geymslur, fullbúin húsgögnum, vínkælir, rafdrifin rúllugluggatjöld, dimmerar, gólfhiti, loftkæling, spa, líkamsrækt,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas Golf,