Kaplahraun 8, 220 HafnarfjörðurTil sölu: er afar vel staðsett um 120 fm atvinnuhúsnæði við Kaplahraun 8 í Hafnarfirði.
Um er að ræða fjölnota bil með góðri lofthæð og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum sem getur hentað undir margvíslega starfsemi, svo sem lager, verkstæði, þjónustufyrirtæki, netverslun eða léttan iðnað.
Húsnæðið skiptist í opinn vinnusal, salerni og gott milliloft sem getur nýst sem skrifstofa, fundaraðstaða eða kaffistofa fyrir starfsfólk.
Helstu kostir eignarinnar:Um 120 fm atvinnubil með góðri lofthæð.
Innkeyrsluhurð og sérinngangur að framan.
Innkeyrsluhurð og aðgengi einnig að aftanverðu.
Gott útisvæði bæði fyrir framan og aftan bilið.
Salerni innan eignar.
Milliloft sem nýtist sem skrifstofa, kaffistofa eða geymsla.
Sveigjanlegt húsnæði sem hentar fjölbreyttri atvinnustarfsemi.
Frábær staðsetning
Kaplahraun er eitt rótgrónasta atvinnu- og iðnaðarsvæði Hafnarfjarðar og nýtur mjög góðrar tengingar við helstu samgönguæðar höfuðborgarsvæðisins.
Staðsetningin býður upp á skjótan aðgang að Reykjanesbraut sem auðveldar samgöngur bæði til Reykjavíkur, Garðabæjar, Kópavogs og Reykjanesbæjar.
Í næsta nágrenni er fjölbreytt þjónusta, verslun og önnur atvinnustarfsemi sem stuðlar að öflugu rekstrarumhverfi.
Kaplahraun hefur um árabil verið eftirsótt staðsetning fyrir fyrirtæki sem vilja sameina góða aðstöðu, gott aðgengi og miðlæga staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is