Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.isHeiðartún 2 íbúð 105 - falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með góðu aðgengi - stærð 76,0 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu í sameign.
Nánari lýsing:Forstofan er afar rúmgóð með ljósum gólfefnum og góðum tvöföldum fataskáp.
Stofan og eldhúsið eru í björtu og opnu rými með ljósum gólfefnum. Úr stofu er gengið út á rúmgóða austur verönd þar sem einnig er hægt að fara út í stóra sameiginlega lóð
Eldhúsið er með dökkri L-laga innréttingu með hvítum efri skápum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og hvítum háf.
Svefnherbergin eru tvö og eru bæði með ljósum gólfefnum, góðum fataskáp og glugga. Annað svefnherbergið er skráð sem geymsla á teikningum.
Baðherbergið er með gráum flísum á gólfi og veggjum, rúmgóðri sturtu með glervæng, hvítri innréttingu með plássi fyrir þvottavél og þurrkara, vegghengdu wc og handklæðaofni.
Sér geymsla er í sameign sem er skráð 4,4 m².
Annað:- Eign á jarðhæð með góðu aðgengi
- Rúmgóð verönd sem gengið er á úr stofu
- Frábær staðsettning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, sem og golfvöllinn
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.