NÝTT Á SÖLUSKRÁ:Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu, fallegt og mikið endurnýjað 136,5 m² miðjuraðhús að
Grundartanga 20, 270 Mosfellsbær, nánar tiltekið eign merkt 01-0101, fastanúmer
208-3555 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Fallegt fjölskylduhús á tveimur hæðum með nýlegum sólpalli með köldum potti og saunahúsi.
Rúmgóður 13 m²
geymsluskúr á hellulagðri verönd fyrir framan hús.
Nánari lýsing á eigninni:
Neðri hæðForstofa: Fatahengi. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi I (hjónaherbergi): Rúmgott og bjart herbergi með fataskápum. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Gott barnaherbergi með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Nútímaleg lítil innrétting með borðplötu frá S. Helgasyni, vegghengt salerni, handklæðaofn og sturta. Flísar á gólfi.
Þvottaherbergi: Hagnýt innrétting sem rúmar þvottavél og þurrkara. Góðar hillur og lakkað gólf.
Eldhús: Nýleg innrétting með dökkum skápum og borðplötu frá S.Helgasyni. Bakaraofn í vinnuhæð, spanhellur og gufugleypir. Harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Bjart og opið samliggjandi rými við eldhúsið. Stórir gluggar sem hleypa mikilli birtu inn. Aukin lofthæð. Harðparket á gólfi. Útgengt er út á skjólsæla timburverönd til suðvesturs með köldum potti og saunahúsi.
Efri hæðSvefnherbergi III: Gott barnaherbergi með þakglugga. Harðparket á gólfi
Svefnherbergi IV: Rúmgott barnaherbergi með þakglugga. Harðparket á gólfi.
Sjónvarpsstofa/skrifstofa: Rúmgott opið rými með þakglugga sem hægt er að nota sem sjónvarpsstofu eða skrifstofu. Harðparket á gólfi.
Geymsla innan rýmis með góðu geymsluplássi undir súð.
Skjólgóður sólpallur í suðvestur með köldum potti og saunahúsi. Góð hirslueining með góðu geymsluplássi og pizzaofni.
Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er við bílastæðið.
Framkvæmdir og viðhald eignarinnar samkvæmt seljanda:
2006 - 2007: Viðbygging reist og annarri hæð bætt ofan á eldri íbúðareininguna.
2007: Nýtt rafmagn og nýir gluggar í stofu.
2007 - 2022: Vatnslagnir endurnýjaðar.
2007: Nýir ofnar nema í forstofu, hjónaherbergi og barnaherbergi á fyrstu hæð.
2020: Nýir gluggar í herbergjum.
2022: Ný eldhúsinnrétting og nýtt harðparket.
2022: Nýr sólpallur og skjólveggir.
2022: Geymsluskúr 13 m².
2026: Ný rafmagnstafla.
Fjölskylduhús á eftirsóttum stað í rólegu og grónu íbúðarhverfi miðsvæðis í Mosfellsbæ. Grunn- og leikskólar í næsta nágrenni. Öll helsta þjónusta og verslanir eru í göngufæri. Frábærar göngu- og hjólaleiðir allt í kring.
Eignin Grundartangi 20 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 208-3555, birt stærð 136.5 m².Neðri hæð er skráð 108,5 m² og efri hæð er skráð 28 m².
Nánari upplýsingar veitir:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.