*** ESPIGRUND 6 - 300 AKRANES***
PRIMA fasteignasala og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: Fallegt og frábærlega staðsett miðjuraðhús að Espigrund 6 130,7 fm og 35 fm bílskúr samtals 165.7 fm. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, rúmgóð stofa og borðstofa, rúmgott baðherbergi, eldhús með borðkrók, þvottahús og fullbúin studio íbúð í bílskúr. Góðar leigutekjur!
OPIÐ HÚS: ÞRIÐJUDAGINN 11. FEB. KL 17:30 - 18:00
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLITSJÁ MYNDBAND AF EIGN (VIDEO)Lýsing:Forstofa, góðir nýlegir skápar. Flísalagt.
4 svefnherbergi, parket á gólfum og góðir skápar í öllum herbergjum nema einu.
Baðherbergi með góðri innréttingu og sturtu, flísar hólf í gólf, endurnýjað 2020
Eldhús, lökkuð innrétting, nýleg hvít borðplata, flæðandi parket á gólfi og uppþvottavél getur fylgt.
Innaf eldhúsi eru
þvottaherbergi og bílskúr.Þvottaherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr (stúdíó íbúð), búið er að útbúa íbúð í bílskúr með sérinngang og lítilli verönd að framanvörðu. Hvít eldhús innrétting, samliggjandi stofa/borðastofa/svefnrými, baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél. Góðar leigutekjur.
Annað: Nýlegt gler garðhús fylgir með. Háloft frá fosrstofu. Steypt innkeyrsla. Verönd við inngang (gert ráð fyrir heitum potti). Neysluvatnslagnir húss endurnýjaðar og varmaskiptir á neysluvatni.
Staðsett í rólegri botnlangagötu, stutt frá leikskóla, gunnskóla og íþróttasvæði.
Nánari upplýsingar veitir:Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s.
787 3505 /
oliver@primafasteignir.is__________________________________________________________________________________________
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRIMA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.