Sunnudagur 9. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 4. ágúst 2026

Miðvangur 18

FjölbýlishúsAusturland/Egilsstaðir-700
93.3 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
588.424 kr./m2
Fasteignamat
46.950.000 kr.
Brunabótamat
52.850.000 kr.
SM
Sigurður Magnússon
Fasteignasali
Byggt 2000
2. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2246633
Landnúmer
188141
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Ekki vitað en lítur vel út
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sér svalir út af stofu
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
INNI fasteignasala ehf. kynnir í einkasölu MIÐVANG 18, ÍBÚÐ 203.

Frábærlega staðsett íbúð, á tveimur hæðum í fjölbýlishúsi sem reist er árið 2000. Húsið er staðsett í hjarta bæjarins og er mjög stutt í alla verslun og þjónustu. Íbúðin er á annari hæð og er sér inngangur að öllum íbúðunum. Íbúðin var mikið endurnýjuð að innan árið 2022 s.s. gólfefni, innrétting í eldhúsi, hurðir og fleira.


Íbúðin er á tveimur hæðum, þar sem auðvelt er að hafa tvö svefnherbergi á efri hæðinni auk rúmgóðra geymslurýma og þannig getur verið um fjögurra herbergja íbúð að ræða. Samkvæmt fasteignaskrá er neðri hæðin skráð 64,7 fm og efri hæðin 28,7 (birt stærð, þ.e. yfir 1,8m á hæð), samtals 93,3 fm. Efri hæðin nýtist vel umfram birta stærð. 
Íbúðin skiptist í:
Neðri hæð: forstofa, hol, alrými (eldhús, stofa, borðstofa), þvottahús, baðherbergi, svefnherbergi.
Efri hæð: Lokuð geymsla, svefnherbergi, setu/vinnustofa (mjög auðvelt að breyta í herbergi) með góðu geymslurými. 
Nýlegt Vinyl parket sem flæðir yfir önnur rými en baðherbergi sem er flísalagt. Veggir í baðherbergi einnig flísalagðir að mestu (2ja metra hæð). Nýlega hefur verið sett upp ný eldhúsinnrétting og skipt um hurðar. Þá var innrétting í baðherbergi máluð sem og íbúðin öll. Innbyggður ísskápur og frystir, innbyggð uppþvottavél. 

Miðvangur 18 er 10 íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum + hæð í íbúðum efri hæðar. Húsið er byggt úr steinsteyptum einingum, þak er klætt bárustáli. 
Sér inngangur er í íbúðir efri hæðar frá svölum. Sameiginleg lóð er frágengin, sorptunnuskýli. Í sameign á 1. hæð er sameiginleg geymsla/inntaksrými. 
Malbikuð stæði við húsið eru í sameign. Húsfélag er starfrækt í eigninni. 
Lóð er sameiginleg 1.851,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 19. maí 2000. Skjal nr. 426-F-000659/2000.
Sjá eignaskiptayfirlýsingu um Miðvang 18, Egilsstöðum, skjal nr. 426-F-000203/2001. Hlutfallstala íbúðar í lóð og húsi er 9,64% og í hita 9,71%.

Einstaklega vel útlítandi íbúð á góðum stað miðsvæðis á Egilsstöðum. 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/11/202123.950.000 kr.32.000.000 kr.93.3 m2342.979 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dísardalur 6A - 0101
Dísardalur 6A - 0101
260 Reykjanesbær
90.3 m2
Fjölbýlishús
312
748 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Bílastæði
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
82.3 m2
Fjölbýlishús
312
837 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Strikið 10
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Strikið 10
Strikið 10
210 Garðabær
111.1 m2
Fjölbýlishús
312
881 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Skeggjagata 16
Opið hús:10. ágúst kl 15:00-15:20
Skoða eignina Skeggjagata 16
Skeggjagata 16
105 Reykjavík
92.4 m2
Fjölbýlishús
312
832 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin