Rúmgóð og björt 2. herbergja íbúð með fallegu útsýni við Reykás 29 í 110, Árbæ
- Á 1. hæð í 110 Árbæ
- Svalir með fallegu útsýni yfir Rauðavatn
- Miklar endurbætur í gegnum árinNánari upplýsingar veita:
Orri Hilmarsson astmf. í S:615-3011 eða orri@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.isÍbúðin skiptist í stofu, forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og þvottaherbergi innan íbúðar.
Birt stærð séreignar er 70,1 m². Geymsla er í sameign.
Nánari lýsing:Gengið er inn í forstofu með parketi á gólfi. Frá forstofu er þvottaherbergi og baðherbergi til vinstri og svefnherbergi til hægri svo er gengið inn í opið alrými með stofu og eldhúsi. Úr svefnherbergi er útgengt á svalir.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa sem tengist eldhúsi í opnu alrými. Parket er á gólfi
Eldhús: Eldhús með parketi á gólfi, innbyggðum ísskáp, góðu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og bakaraofni.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi. Gengið er út á svalir úr svefnherbergi
Baðherbergi: Parklagt baðherbergi með sturtu, upphengdu klósetti, vask, og vaskskáp.
Þvottaherbergi: Flísalagt og rúmgott þvottaherbergi með skáp sem er með aðstöðu fyrir þurrkara og þvottavél í mittishæð.
Geymsla: Geymsla er í sameign
Svalir: Svalir með fallegu útsýni yfir Elliðavatni
Nýlegar framkvæmdir skv. seljanda- Skipt um innihurðar 2025
- Skipt um gólfefni 2025
- Ný eldhúsinnrétting 2025
- Ný innrétting í þvottahús 2025
- Nýr fataskápur í svefnherbergi 2026
- Skipt um alla glugga og svalahurð 2025
Staðsett í góðu hverfi í 110 Árbæ. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla, grunnskóla, matvöruverslanir og sund. Einnig er stutt í útivistarsvæði eins og Elliðaárdal, Heiðmörk og Rauðavatn,
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.