Föstudagur 18. september
Fasteignaleitin
Opið hús:21. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 18. sept. 2026

Álfkonuhvarf 15

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
207.9 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
179.900.000 kr.
Fermetraverð
865.320 kr./m2
Fasteignamat
157.250.000 kr.
Brunabótamat
107.300.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2004
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2270548
Landnúmer
193714
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Endurnýjað að hluta 2024 - Sjá ástandsyfirlýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvær svalir
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Húsið er skráð hjá HMS sem Raðhús en er parhús.
Álfkonuhvarf 15, 203 Kópavogur.

Rúmgott og fjölskylduvænt parhús á tveimur hæðum með fimm svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, tvennum svölum og bílskúr. Skráð stærð er 207,9 fm. Við húsið er 142 fm pallasvæði með heitum potti, skjólgóðum bakgarði og gróðurhúsi. Auk svefnherbergjanna hefur verið innréttað aukaherbergi í hluta bílskúrs, í rými sem er merkt geymsla á teikningum. Fyrir framan húsið er bílaplan með pláss fyrir fjóra bíla.
Hér sameinast gott rými fyrir fjölskylduna og útiaðstaða sem býður upp á fjölbreytta nýtingu.

Skráð stærð er 207,9 fm

Helstu atriði
  • Fimm svefnherbergi auk innréttaðs aukaherbergis í bílskúr
  • Tvö baðherbergi, eitt á hvorri hæð, og tvennar svalir.
  • 142 fm pallsvæði, heitur pottur og bakgarður sem var endurgerður sumarið 2025.
  • Bílskúr, bílaplan fyrir fjóra bíla, gróðurhús og undirbúningur fyrir útieldhús.
  • Þak að hluta til endurnýjað 2024


Nánari upplýsingar veita:
Ómar Hjaltason astmf. S:778-9090 eða omar@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is


Nánari lýsing
Við Álfkonuhvarf 15 er að finna rúmgott parhús þar sem herbergjafjöldi og góð útiaðstaða henta vel stærri fjölskyldum. Húsið er á tveimur hæðum með fimm svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, einu á hvorri hæð. Tvennar svalir og stórt pallasvæði gefa heimilisfólki kost á að njóta útiveru á mismunandi tímum dags.
Herbergjaskipan og bílskúr: Fimm svefnherbergi eru í húsinu. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru á neðri hæð. Hjónasvíta er á efri hæð. Tvö önnur svefnherbergi eru á efri hæð þar sem hluta stofunnar hefur verið lokað af með léttum veggjum til að útbúa herbergi. Gert hefur verið ráð fyrir raflögnum í veggjunum, en eftir er að draga í þá. Í bílskúrnum hefur jafnframt verið stúkað af herbergi með opnanlegum glugga. Það rými er merkt geymsla á teikningum og er til viðbótar við svefnherbergin fimm. Skipulag hússins er því að hluta frábrugðið upprunalegum teikningum.
Svalir og pallsvæði: Útiaðstaðan er einn af helstu kostum hússins. Pallasvæðið er 142 fm og býður upp á gott pláss fyrir útiborð, setuaðstöðu og samveru fjölskyldu og vina. Pallurinn framan við húsið nýtur morgun- og hádegissólar, en pallurinn að aftan er skjólgóður og nýtur hádegis- og síðdegissólar. Svalir eru bæði framan og aftan við húsið; svalirnar að framan njóta morgunsólar en svalirnar að aftan kvöldsólar.
Heitur pottur og útieldhús: Á pallinum er heitur pottur með Wi-Fi-stýringu og stillanlegri litlýsingu. Hægt er að stjórna pottinum úr síma. Undir svölunum að aftan hefur verið gert ráð fyrir útieldhúsi, með rennandi vatni og raflögnum fyrir lýsingu og innstungu. Jafnframt hefur verið lagt fyrir þriggja fasa rafmagni að pottasvæðinu með mögulega uppsetningu á Sauna í huga. 
Garður og gróðurhús: Bakgarðurinn var endurgerður sumarið 2025. Við uppsetningu gróðurhúss var skipt um jarðveg undir því og steypt gólfplata. Gróðurhúsið er með flísalögðu gólfi og rafmagni fyrir lýsingu og hitara. Upphækkuð gróðurbeð afmarka hluta garðsins og í þeim er lýsing sem hægt er að breyta úr síma. Útilýsing er sjálfstýrð og stór hluti innilýsingar er einnig með snjallperum.
Aðkoma: Fyrir framan húsið er bílaplan með rými fyrir fjóra bíla. Þar hefur einnig verið útbúin aðstaða fyrir þrjár sorptunnur og lagt fyrir lýsingu og innstungu.

Hér er um að ræða rúmgott fjölskylduheimili með fimm svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og aukarými í bílskúr. Stórt pallsvæði, tvennar svalir, heitur pottur og gróðurhús skapa góða umgjörð um fjölskyldulíf og samveru.



www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/12/201758.550.000 kr.53.000.000 kr.207.9 m2254.930 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2004
37.9 m2
Fasteignanúmer
2270548
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.450.000 kr.

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Huldubraut 17
Skoða eignina Huldubraut 17
Huldubraut 17
200 Kópavogur
210.1 m2
Parhús
615
752 þ.kr./m2
157.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 9
Opið hús:19. sept. kl 14:00-14:45
V9 - 201.jpg
Skoða eignina Vorbraut 9
Vorbraut 9
210 Garðabær
88.3 m2
Fjölbýlishús
312
1063 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut (þakíbúð) 9
Opið hús:19. sept. kl 14:00-14:45
Copy of Sæþór_vefur.png
Vorbraut (þakíbúð) 9
210 Garðabær
179.5 m2
Fjölbýlishús
422
1197 þ.kr./m2
214.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 35
Opið hús:19. sept. kl 15:00-15:30
1.jpg
Skoða eignina Vorbraut 35
Vorbraut 35
210 Garðabær
252.3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin