Fasteignasalan Torg og Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, kynna: Bjarta og vel skipulagða 84m², 3ja herbergja íbúð í barnvænu umhverfi. Íbúðin er á annarri hæð í Heiðarholti 12 í Keflavík í fjölbýlishúsi með góðri sameign og aðgengi að afgirtum og barnvænum bakgarði. Sérgeymsla er í sameign hússins og telst hún ekki til fermetrafjöldans. Stutt er í skóla og aðra þjónustu. Merkt bílastæði fylgir íbúðinni. Staðsetningin er tilvalin fyrir aðila sem ferðast mikið þar sem alþjóðaflugvöllurinn okkar sem er kenndur við Leif Eiríksson er rétt handan við hornið.
Allar nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson, lögfs, í síma 623-1717 - svavar@fstorg.is. Hafðu einnig samband ef þig vantar frítt verðmat á þína fasteign. Skipulag eignar:Forstofa/Inngangur: Rúmgott hol með fataskáp.
Eldhús: Bjart með góðri eldhúsinnréttingu, borðkrók við glugga, veggflísum, borðhellu, bakaraofni, viftu og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt á góðar svalir með viðarbotni.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi, þar af hjónaherbergi með föstum fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt með baðkari sem hefur glervegg fyrir sturtuaðstöðu. Góð innrétting, salerni og tengi fyrir þvottavél.
Sameign: Sérgeymsla í sameign (3,55 m²) auk sameiginlegrar vagna- og hjólageymslu.
Geymsla. Sérgeymsla fylgir íbúðinni og er hún staðsett í sameign hússins. Hún telst ekki til fermetrafjölda íbúðarinnar.
Bakgarður: Barnvænn og afgirtur bakgarður.
Bílastæði. Merkt bílastæði fylgir íbúðinni.
Íbúðin er vel staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi með stutt í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Gott fjölbýli með vel skipulagðri sameign og skjólgóðum bakgarði. Íbúðin er tilvalin fyrir þá sem ferðast mikið þar sem örfáar mínútur eru á flugvöll Leifs Eiríkssonar.
Allar nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson, lögfs, í síma 623-1717 - svavar@fstorg.is. Hafðu einnig samband ef þig vantar frítt verðmat á þína fasteign.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.