Þriðjudagur 25. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 25. ágúst 2026

Uppsalavegur 6

FjölbýlishúsNorðurland/Húsavík-640
196.4 m2
5 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
79.800.000 kr.
Fermetraverð
406.314 kr./m2
Fasteignamat
61.600.000 kr.
Brunabótamat
82.510.000 kr.
Byggt 1948
Jarðhæð af 2
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2153427
Landnúmer
150771
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Gott
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Almennt gott
Þak
Endurnýjað 2020
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Lögeign kynnir eignina Uppsalavegur 6, 640 Húsavík

Uppsalavegur 6 er vel staðsett einbýlishús á tveimur hæðum með bílskur, sem hefur verið endurnýjað á mjög smekklegan hátt á undanförnum árum. Heildarstærð eignarinnar er 196,4 m2 og þar af er bílskúr 25,9 m2. Húsið er byggt árið 1948 en bílskúr var byggður árið 1961. 


Efri hæð: Gengið er upp tröppur á utanverðu húsinu og er þar komið inn í stóra og fallega forstofu. Úr forstofunni er svo gengið inn í aðalrými hæðarinnar sem hefur verið sameinað í eitt opið og bjart rými. Þar er gert ráð fyrir sjónvarpsstofu og borðstofu auk þess sem stórt eldhús er í horni rýmisins. Hægt er að ganga út á stóra verönd úr stofununni þar sem er timburverönd með skjólveggjum og heitum potti. Eldhúsinnrétting er hvít með viðarborðplötu. Mikið bekkjarpláss er í eldhúsinu. Baðherbergi er á hæðinni og hefur það nýlega allt verið endurnýjað. Ný sturta er á baðherberginu með innbyggðum tækjum og sturtugleri. Steingráar flísar eru á bæði veggjum og gólfi á baðherberginu og hvít skápainnrétting og upphengt salerni. Nýlegar flísar eru á gólfinu á allri hæðinni. 

Neðri hæð: Gengið er niður af efri hæð niður á jarðhæð hússins. Einnig er hægt að ganga inn á hæðina að utan og inn í litla forstofu. Þegar komið er niður stiga þá er komið inn á svefnherbergisgang sem er með fimm svefnherbergjum. Hjónaherbergi er með stórum fataskáp. Lausir skápar eru í þremur barnaherbergjum. Eitt herbergið er svo notað sem geymsla í dag. Baðherbergi sem hefur verið nýlega endurnýjað er einnig á ganginum og er það með flísum á bæði veggjum og gólfi, sturtu með glerskilrúmi og upphengdu salerni. Þegar komið er niður stiga af efri hæð er þvottahús á hægri hönd sem hefur líkt flest önnur rými í húsinu farið í miklar endurbætur nýlega. Dökkgráar flísar eru þar á gólfi og hvít skápainnrétting með vask og dökkri borðplötu. Innrétting er sniðin í kringum rými fyrir bæði þurrkara og þvottavél. 
Bílskúr er við húsið og er hann 25,9 m2 að stærð og er hann með hurð út í garð. Bílastæði er fyrir framan bílskúr. Vestan megin við húsið er einnig nýbúið að útbúa bílastæði fyrir tvo bíla. Nýjar tröppur eru á utanverðri eigninni þar sem gengið er upp forstofu á efri hæð. Verönd bakvið hús er með göngupall að bílskúr með tröppum upp í garð og upp á timburverönd.  Í garðinum er einnig geymsluskúr og gróðurhús. Timburverönd með skjólveggjum og heitum potti.

Endurbætur:
  • 2025 hurð sett úr stofu og út á stóra verönd með heitum potti
  • Skipt var um þak á húsinu árið 2020
  • Húsið var málað að utan árið 2020
  • Baðherbergi á efri hæð var endurnýjað árið 2020
  • Bílastæði voru útbúinn við eignina og nýjar tröppur settar utan á húsið árið 2020
  • Búið að skipta um allar lagnir og klóak út í götu
  • Gólfhiti er í öllu húsinu
  • Þvottahús er frá árinu 2019
  • Baðherbergi á neðri hæð var endurnýjað árið 2018
  • Parket var sett á alla neðri hæðina fyrir utan baðherbergi og þvottahús árið 2018
  • Eldhús var endurnýjað árið 2011
  • Flísar á efri hæð voru settar árið 2011
  • Varmaskiptir er í húsinu
  • Ástand á gluggum og gleri er almennt gott. Búið að skipta um gler í einhverjum gluggum en gler í a.m.k. tveimur gluggum er komið á tíma.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/07/200812.353.000 kr.22.500.000 kr.366.3 m261.425 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1961
25.9 m2
Fasteignanúmer
2153427
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.760.000 kr.
Lögeign
www.logeign.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Miðvangur 10
Opið hús:31. ágúst kl 17:00-18:00
Skoða eignina Miðvangur 10
Miðvangur 10
220 Hafnarfjörður
125.8 m2
Fjölbýlishús
513
667 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Strandvegur 26
Skoða eignina Strandvegur 26
Strandvegur 26
900 Vestmannaeyjar
130.4 m2
Fjölbýlishús
211
459 þ.kr./m2
59.800.000 kr.
Skoða eignina Kársnesbraut 108
Kársnesbraut 108
200 Kópavogur
90.3 m2
Fjölbýlishús
312
863 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Hólmatún 9 íbúð 101
Hólmatún 9 íbúð 101
600 Akureyri
97.4 m2
Fjölbýlishús
413
769 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin