Þriðjudagur 14. júlí
Fasteignaleitin
Opið hús:17. júlí kl 16:15-17:00
Skráð 14. júlí 2026

Akurgerði 7f

RaðhúsNorðurland/Akureyri-600
149.7 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
95.900.000 kr.
Fermetraverð
640.615 kr./m2
Fasteignamat
76.750.000 kr.
Brunabótamat
78.900.000 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2144743
Landnúmer
147044
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
óþekkt
Raflagnir
óþekkt
Frárennslislagnir
Endurn. fyrir um 15-20 árum.
Gluggar / Gler
Gler og póstar endurnýjaðir
Þak
Þakpappi, styttist í endurnýjun.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Til vesturs
Lóð
16,67
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Ummerki um raka í suð-austurhorni neðri hæðar.
Eldhús á neðri hæð gamalt.  
Styttist í að mála þurfi að utan og sömuleið styttist í að endurnýja þurfi þakpappa.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600 kaupa@kaupa.is

Töluvert endurnýjuð 6 herbergja endaraðhúsaíbúð á tveimur hæðum við Akurgerði 7. Eignin er 149,7 m² að stærð og nýtist afar vel. Eignin skiptist þannig að aðalinngangur er á stigapalli á milli hæða, og á efri hæð er eldhús, stofa, tvö herberbergi og baðherbergi, og á neðri hæð er þrjú herbergi, eldhús, baðherbergi og þvottahús/geymsla.

Forstofur eru tvær.  Aðalinngangur er inn á stigapalla á milli hæða og þar eru flísar á gólfi.  Annnar inngangur er inní þvottahús á neðri hæð.
Eldhús var endurnýjað árið 2021.  Ljós innrétting með flísum á milli skápa og harðparketi á gólfi.  Á neðri hæð er annað lítið eldhús sem notað var útleigu neðri hæðar.
Stofa er björt og með gluggum til suðurs og vesturs - opið er á milli eldhúss og stofu.  Ljóst harðparket er á gólfum og útgangur á svalir til vesturs.  Kamína er í stofunni.
Herbergin eru fimm talsins og öll frekar rúmgóð, tvö á efri hæð og þrjú á neðri hæð.  Annað herbergjanna á efri hæð er innaf stofu og þar hefur hurðargatið verið stækkað og nýtist það sem sjónvarpsstofa í dag, en auðvelt að breyta því aftur í fyrra horf.  Harðparket á gólfum herbergjanna að undanskildu eingu herbergi á neðri hæð hvar útgengt er á pall og að heitum potti - þar eru flísar.
Baðherbergi eru tvö, eitt á hvorri hæð. Baðherbergi á efri hæð var endurnýjað fyrr á þessu ári og þar er flísagt og með sturtu.  Á baðherbergi á neðri hæð er eldra en er einnig flísalagt og með sturtu.      
Þvottahús var allt endurnýjað fyrr á þessu ári og þar er ný ljós innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara og með góðu skápa- og geymsluplássi.  Flísar eru á gólfum og útgangur til vesturs.
Geymslupláss.  Geymsla er undir stiga á neðri hæð og einnig er ágætt geymslupláss í þvottahúsi.  Í garðinum er svo góður geymsluskúr.

Garðurinn hefur verið tölvert tekinn í gegn.  Útgangur er á svalir úr stofu til vesturs og þaða eru tröppur niður í garð.  Einnig er útgengt úr einu herbergi neðri hæðar.  Garður er hellulagður og þar heitur pottur, góðir skjólveggir og geymsluskúr.  Framan við húsið er hellulögð verönd og malbikað plan.

Annað:
- Útleigumöguleikar eru á neðri hæð, en þar er bæði eldhús og baðherbergi.
- Baðherbergi á efri hæð og þvottahús var endurnýjað 2026.
- Eldhús var endurnýjað 2021.
- Harðparket á stærstum hluta íbúðar endurnýjað 2021.
- Gler, póstar og opnanleg fög voru endurnýjuð 2024.
- Drenað hefur verið allt í kringum húsið á síðustu 20 árum og frárennslislagnir og inntök endurnýjuð.
- Hitalagnir eru í stétt við inngang.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Vel staðsett eign hvar stutt er í skóla, tómstundir og alla helstu þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Hvammur
www.kaupa.is

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heiðarlundur 1 E
Opið hús:20. júlí kl 16:30-17:00
Heiðarlundur 1 E
600 Akureyri
142.6 m2
Raðhús
614
651 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Álfabyggð 24
Opið hús:15. júlí kl 16:15-17:00
Skoða eignina Álfabyggð 24
Álfabyggð 24
600 Akureyri
125.5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
633 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Álfabyggð 24
Opið hús:15. júlí kl 16:15-17:00
Skoða eignina Álfabyggð 24
Álfabyggð 24
600 Akureyri
115.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
629 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 1,406
Bílastæði
Skoða eignina Asparlaut 1,406
Asparlaut 1,406
230 Reykjanesbær
156.7 m2
Fjölbýlishús
423
593 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin