RE/MAX kynnir: Fallega og bjarta 4ra herbergja neðrihæð í raðhúsalengju við Háagerði 43 í Reykjavík. Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá íslands 83,4 fm og þar af geymslauskúr í garði 11,1 fm
Nánari lýsing:
Forstofa, rúmgóð með fatahengi.
Rúmgott og bjart hjónaherbergi með fataskáp
Barnaherbergið er rúmgott og bjart með fataskáp
Annað herbergi sem var gert að sjónvarpsstofu og auðvelt að breyta til baka í herbergi, útgengi út í garð úr herberginu
Rúmgóð stofa og borðstofa með útgengi í garð.
Eldhús með nýlegri eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi, AEG eldunartæki.Innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Tengi fyrir þvottavél og þurkara í eldhúsi.
Fallegt baðherbergi með ljósri innréttingu, sturtu, flísalagt í hólf og gólf.
Geymsluskúr í garði skráð 11,1 fm í garði með rafmagni.
Góð eign á vinnsælum stað, stutt í alla þjónustu.
Hverfi
Stutt í verslun og þjónustu
Fjórir leikskólar í göngufjarlægð (Vinagerði, Jörfi, Garðaborg, Skógarborg)
Góðir grunnskólar í göngufjarlægð (Breiðagerðisskóli, Réttarholtsskóli)
Viðhald
Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin:
2024: Hellulögn og múrviðgerðir
2023: Garður girtur með skjólvegg
2022: Nýtt þakjarn, þakrennur og pappi ásamt því að skipta út tréverki í þaki þar sem við átti.
Viðhald framkvæmt af fyrri eigendum:
2012-2021: Opnað milli stofu og eldhúss, ný eldhúsinnrétting, gólf flotuð, nýjar raflagnir, nýjar vatnslagni, nýtt dren, nýjar frárennslislagnir, sameigileg innkeyrsla Háagerðis 41-49 malbikuð, vegkanntur steyptur og niðurföll tengd í affallsbrunn
Húsfélag
Það er kt fyrir Húsfélag Háagerðis 41-49 en í raun er húsfélag lengjunnar allrar ekki virkt og ekki reglulegir fundir. Enginn sjóður eða mánaðarleg gjöld fara til húsfélagsins.
Hvert húsnúmer sér um sinn part af lengjunni.
Það er ekki formlegt húsfélag fyrir Háagerði 43.
Allar framkvæmdir hafa verið greiddar eins og þær eru framkvæmdar
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Páll lögg,fasteignasali í síma 861-9300 eða pallb@remax.is og Úlfar Hrafn lögg,fasteignasali í 6238747 eða ulfar@remax.is
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum viltu frítt söluverðmat ekki hika við að vera í sambandi sími 861-93300 Páll og eða pallbremax.is og Úlfar Hrafn lögg,fasteignasali sími 6238747 eða ulfar@remax.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m