Sunnudagur 7. desember
Fasteignaleitin
Skráð 1. des. 2025
Deila eign
Deila

Sólmundarhöfði 7

FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
108.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
690.323 kr./m2
Fasteignamat
61.200.000 kr.
Brunabótamat
61.450.000 kr.
Mynd af Björn Þorri Viktorsson
Björn Þorri Viktorsson
hrl. og lögg. fasteignasali
Byggt 2015
Þvottahús
Lyfta
Garður
Aðgengi fatl.
Sameig. Inng.
50 ára og eldri
Fasteignanúmer
2305719
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
8
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Góðar yfirbyggðar s-a svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Viðgerð er framundan á þaki hjólageymslu, áætlað að fari fram 2026.  Inneign í hússjóði er 6,7 millj. og 5,5 millj. í framkvæmdasjóði.
Kvöð / kvaðir
Eignin er fyrir 50 ára og eldri.
Fasteignasalan Miðborg kynnir mjög fallega og bjarta 3ja herbergja 108 fm. íbúð á 2. hæð að Sólmundarhöfða 7 á Akranesi, sem er 9. hæða lyftuhús með tveimur útsýnislyftum, ætlað fyrir 50 ára og eldri.  Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu/herbergi innan íbúðar.  Glæsilegar s-a svalir með svalalokun og fallegu útsýni.  Íbúðin er skráð 01-01, þar sem jarðhæðin er skráð sem 00-01.

Nánari lýsing:  Komið er á rúmgóða parketlagða forstofu með 5x fataskápum og innbyggðum spegli með baklýsingu.  Eldhúsið er parketlagt, með fallegri eikarinnréttingu (þverliggjandi) með granít á vinnuborðum, span helluborði og AEG ofni.  Veggur á milli stofu og eldhúss hefur verið fjarlægður sem opnar rýmið mjög.  Rúmgott hjónaherbergi með 4x fataskápum til lofts.  Baðherbergið er flísalagt, með innréttingu, glugga, handklæðaofni og sturtu.  Þvottahúsið er flísalagt, með góðum innréttingum og gert ráð fyrir vélum í vinnuhæð, gluggi og skolvaskur í þvottahúsi.  Parketlögð geymsla innan íbúðar, með glugga og hillum og aðstöðu fyrir frystiskáp/kistu (hægt að nýta sem herbergi).  Stofan er parketlögð, rúmgóð og björt, með útgangi á stórar yfirbyggðar suð-austur svalir með fallegu útsýni.  Glerlokun niður undir svalagólfi, parketflísar á gólfi, panelklæðning á veggjum, lýsing og hitalampi á svölum.  Innaf stofunni er parketlagt svefnherbergi, með stórum hornglugga og fallegu útsýni.  Björt eign, með gluggum í öllum aðalrýmum.

Sameign hússins er einstaklega snyrtileg og mikill metnaður íbúa blasir þar við.  Forstofa við aðalinngang á 1. hæð er flísalögð og þar er myndavéla-dyrasími og aðgangsstýring að sameign. Sameignargangar við lyftur eru teppalagðir og mjög rúmgóðir og bjartir.  Sameiginleg hjólageymsla á 1. hæð, en úr snyrtilegri sorpgeymslu er hægt að taka út sameiginlegt háþrýstitæki til bílaþvotta.
Húsið er 8 hæðir, steypt og klætt með álklæðningu og tekið í notkun 2015/2016.  31 íbúð eru í húsinu og við það eru 27 bílastæði á lóð og þar af 2 stæði með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.  Einstök staðsetning við sjóinn, náttúruna og Langasand, Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili, íþróttasvæðið, sundlaugina, og gönguleiðir.  Stutt í nýja miðbæinn og alla þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/01/201723.900.000 kr.30.300.000 kr.108.5 m2279.262 kr.Nei
04/04/201337.350.000 kr.80.000.000 kr.3076.5 m226.003 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þjóðbraut 3
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Þjóðbraut 3
Þjóðbraut 3
300 Akranes
102.7 m2
Fjölbýlishús
413
749 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Garðabraut *409 1
Bílastæði
Opið hús:10. des. kl 17:00-18:00
Garðabraut *409 1
300 Akranes
83.1 m2
Fjölbýlishús
312
871 þ.kr./m2
72.400.000 kr.
Skoða eignina Garðabraut *104 1
Bílastæði
Opið hús:10. des. kl 17:00-18:00
Garðabraut *104 1
300 Akranes
89.5 m2
Fjölbýlishús
211
837 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Garðabraut *106 1
Bílastæði
Opið hús:10. des. kl 17:00-18:00
Garðabraut *106 1
300 Akranes
98.4 m2
Fjölbýlishús
312
792 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin