LIND fasteignasala og Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 5 herbergja 118.5 fm útsýnisíbúð á 3 hæð við Bæjarholt 3 í Hafnarfirði.
Birt stærð eignar er 118.5 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 5,6 fm geymsla í kjallara. Búið er að merkja bílastæði hverri íbúð fyrir framan húsið.
Íbúðin er virkilega vel skipulögð með mjög rúmgóðu alrými. Möguleiki er að bæta við einu svefnherbergi í íbúðina. Frá alrými er útgengt út á suður svalir sem eru með virkilega fallegu útsýni til fjalla.
*** Frábært útsýni ***
*** Möguleiki á að útbúa auka herbergi ***
Eignin skiptist í eldhús, stofu og borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar í síma 822-8574 eða arinbjorn@fastlind.is
Nánari lýsing:
Forstofa er físalögð með fataskáp.
Eldhús með ljósri innréttingu.
Stofa og borðstofa eru björtu opnu rými með parket á gólfi og útgengt á svalir.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Barnaherbergi I með parket á gólfi.
Barnaherbergi II með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturtu og upphengdu salerni.
Þvottahús er innan íbúðar, með innréttingu og vask.
Geymsla er 5,6 fm og er staðsett í sameign.
Bílastæði búið er að merkja hverri íbúð eitt stæði fyrir framan húsið.
Húsið var sprunguviðgert og málað 2020.
Leikskóli (Álfasteinn) og grunnskóli (Hvaleyrarskóli) eru í göngufjarlægð.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
Nánari upplýsingar veitir Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali í síma 822-8574 eða á netfangi arinbjorn@fastlind.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.