Háborg fasteignasala ehf, Jórunn lögg.fasteignasali og Kristín Rós lögg. fasteignasali kynna Grensásvegur 1A, nýbygging í lyftuhúsi með bílakjallara. Glæsilega þriggja herbergja útsýnis íbúð á 6.hæð nr 11 (næst efsta hæð) fallegt útsýni, stærð 88,5 fm, í 108 Reykjavík.
Íbúðin er vandlega innréttuð með fallegum innréttingum í eldhúsi með innbyggðum tæki, úppþvottavél og ískáp með frysti. Á baði er einnig fallega innréttuð snyrtiaðstaða frá Parka. Íbúðin er með svölum út úr stofu/alrými. Geymsla fylgir eigninni 8,5 fm að stærð í kjallara. Eignin skipar geymslu, forstofu, hol, alrými eldhús með vandaðri inntréttingu og tækjum, borðstofa og stofa með útgengt út á svalir sem snúa inn í inngarðinn, 1. barnaherbergi, vinnurými/ skrifstofa og hjónasvíta með fataherbergi, baðherbergi með sturtu og vönduðum tækjum. Bílakjallari á 3. hæðum, næg bílastæði. Hægt er að velja um fleiri en eina áskriftarleið eftir viðveru. Vandað efnisval og vinna. Íbúðin er fullbúin með gólfefnum og ljósakúplum. Afhendist við kaupsamning.
Helstu kostir lúxus íbúðar eru:
Gólfhiti (hitastýring í íbúðunum),
Gólfsíðir gluggar í íbúðinni
Innréttingar með dökkum eikar lituðum forstofuskápum
Eldhúsinnréttingin er með dökk eikar lituð með hvítum skápum
Inngangshurð yfirfelld 260 cm hæð, innihurðir allt að 260 cm
Stærstur hluti innveggja Hemga léttsteypusteinum
Íbúðin skilast með gólfefnum, parketi á gólfum Aroma D3882 10mm/1380/193
Baðgólf flísalögð með dökkum Amani Matt flísum 60x120cm
Innfeld lýsing/ljós í loftum í stofum, eldhúsi, böðum og forstofu
Innfelld blöndunartæki á baði og innfeld lýsing bak við spegil og í lofti
Neysluvatnið með forhitara frágengið og tengt blöndunartækjum
Staðsetning frábær rétt við Laugardalinn
Laus strax við kaupsamning
PANTIÐ SKOÐUN, erum til húsa að Grensásvegi 1. Sýnum með stuttum fyrirvara, Jórunn lögg.fasteignasali jorunn@haborg.is eða síma 845-8958 og Kristín Rós lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is.
Nánar um íbúðina: þegar komið er inn í íbúðina er góður forstofuskápur. Baðherbergið er í holi við hjónaherbergið, með innbyggðum blöndunartækjum sturta og handlaug með skúffum undir og spegill fyrir ofan. Úr forstofu er komið inn í hol en þar blasir við glæsilegt alrými eldhús með eyju sem hægt er að sitja við og glæsilegar rúmgóðar bjartar stofur með útgengi á svalir er snúa að inngarði. Sér þvottahús innaf eldhúsi íbúðar með góðri vinnuaðstöðu. Hjónasvíta með gólfsíðum gluggum og fataherbergi. Einnig eru 1. barnaherbergi með gólfsíðum gluggum og fataskápum, ásamt vinnukrók ( skrifstofa). Eigninni fylgir geymsla í bílakjallara 8,5 fm. Aðgengi að bílakjallara á 3.hæðum.
Húsið Grensásvegur 1: er nýbygging og samanstendur af 5. stigahúsum rúmlega 180 íbúð, ásamt verslunarhúsnæði á 1.hæð. Í stigagangi G1F eru 42. íbúðir. Bílakjallari á 3.hæðum sem nýtist öllum íbúðum ef vill, gegn vægu gjaldi. Kostnaður á hverja klukkustund virka daga er kr 250- frá kl 8:00-18:00, á virkum dögum er kr 150-. frá kl 18:00-8:00. Helgar er kr 120- á klukkustund. Sjá má á www.parka.is nánari upplýsingar um áskriftir. Einnig er að gengi að rafmagnshleðslu stöðvum í bílakjallara.
Húsfélag: Í húsinu er starfrækt húsfélag, það er rekstrarfélag sem sér um udanumhalið. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags.
Um er að ræða glæsilega íbúð á 6.hæð með svölum sem snúa inn í inngarðinn með útsýni. Gott birtuflæði, gólfhiti, aukin lofthæð, loftgæði góð, innbyggð lýsing og afhendist fullbúin með gólfefnum. Einstök staðsetning miðsvæðis þar sem stutt er í alla þjónustu og menningu.
Deilibílar. Stefnt er að því að deilibílar verði hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir verða aðgengilegir fyrir íbúa og starfsfólk fyrirtækja á lóðinni. Fyrirkomulag liggur ekki endanlega fyrir, en markmiðið er leigufyrirkomulag þar sem einfalt app verður notað fyrir aðgengi að bílunum og mögulegir notendur líklega forskráðir.
Lóðin: falleg hönnun á lóðinni þar sem fallegur garður og gott aðgengi fyrir alla er til að njóta saman. Snjóbræðsla undir helstu göngustígum.
Staðsetning: Frábær staðsetnin rétt við Laugardalinn og einstök tenging við Skeifuna. Gott aðgengi af samgönum í nokkra metra fjarlægð. Öll þjónusta og verslun í göngufæri.
Nánari upplýsingar veita Jórunn Skúladóttir lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.