*** SMÁRAFLÖT 3 - 300 AKRANESI ***
PRIMA Fasteignir og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: Afar fallega og mikið endurnýjuð 4ra herb. íbúð á þriðju hæð(efstu) með glæsilegu útsýni, í fjölbýli byggt árið 2006. Stórt alrými, 3 góð svefnherbergi öll með fataskáp, nýuppgert baðherbergi, og stórt þvottahús/geymsla. Góð staðsetning með tilliti til skóla, leikskóla og gólfvöll.SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SÖLUYFIRLIT
SJÁ MYNDBAND AF EIGN (VIDEO)Anddyri: flísalagt, fataskápur.
Eldhús/stofa mynda eitt alrými. hvítinnrétting, hvít borðplata og eldhústæki endurnýjuð 2017, (innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgja). sjónvarpsskápur fylgir. Gengið er út á suðursvalir.
Baðherbergi: nýlega endurnýjað, lökkuð innrétting, flísalagt í hólf og gólf, baðkar og sturta.
3 svefnherbergi og skápar í öllum. Rúmgóð.
Innan íbúðar er
geymsla/þvottaherb, flísalagt gólf, góðar hillur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfefni: Harðparket á öllum gólfum nema baði, þvottahúsi/geymslu og anddyri þar eru flísar. (gólfefni og innihurðir endurnýjað 2017).
Vönduð sérsmíðuð kubba ljós fylgja. Nýlegar sérsniðnar gardínur í öll rými.
Frábær staðsetning. Stutt frá leikskóla, gunnskóla, golfvelli og íþróttasvæði.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.
Nánari upplýsingar veita:Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s.787-3505 /
oliver@primafasteignir.is_________________________________________________________________________________________________
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRIMA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.