Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Vel skipulögð og mikið endurnýjuð fimm herbergja íbúð á efstu hæð í vel viðhaldnu fjölbýli í Hraunbæ 134, 110 Reykjavík.
Íbúðin, sem er 120,1 m², er með fjórum svefnherbergjum og vel skipulögðum rýmum þar sem allar innréttingar, gólfefni og baðherbergi hafa verið endurnýjuð á smekklegan hátt. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með útgengi á svalir. Eldhúsið er vel skipulagt og tengist þvottahúsi og búri sem eykur virkni og þægindi. Svefnherbergin eru fjögur eru öll rúmgóð. Sameign er snyrtileg og hefur nýlega verið tekin í gegn með nýjum gólfefnum og málningu. Eigninni fylgir sér merkt bílastæði á lóð með rafhleðslustaur uppkominn en án hleðslustöðvar.
Skipulag eignarinnar: Íbúðin er á efstu hæð hússins og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, búr, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Eignin er öll með nýlegu harðparketi á gólfum, fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt.
Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isNánari lýsing: Forstofa og gangur: Er
með nýlegu harðparketi á gólfi og fataskápum, opið þaðan inn að öðrum rýmum íbúðar.
Eldhús: Endurnýjað eldhús með svörtum innréttingum og svörtum borðplötum. Á milli efri og neðri skápa er baklýst glerplata með rósamynstri sem setur skemmtilegan svip á rýmið. Innbyggður ofn, ísskápur og uppþvottavél ásamt helluborði, viftu og vask. Gluggar veita góða birtu inn.
Þvottahús og búr: Inn af eldhúsi er sér þvottahús með dökkum innréttingum, vask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er á rýminu. Sér búr er einnig til staðar og tengist þvottahúsinu.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið alrými með nýlegu harðparketi á gólfi. Gluggar veitir mikla birtu inn og þaðan er útgengi út á svalir. Stofan er með innfelldri sjónvarpsinnréttingu. Í borðstofu er rúmgott rými fyrir borðstofuborð
Svalir: Útgengi er á svalir úr stofu/borðstofu.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með nýlegu harðparketi á gólfi. Fataskápar, rennihurðir með spegli eru í herberginu. Bjart og notalegt.
Svefnherbergi II: Bjart herbergi með nýlegu harðparketi á gólfi. Er með innbyggðu hárúmi og glugga sem vísarút í garð.
Svefnherbergi III: Herbergi með nýlegu harðparketi á gólfi. Hárúm, skrifborð og skápar eru samþætt í rýminu sem nýtist vel.
Svefnherbergi IV / Skrifstofa: Herbergi sem útbúið var inn af stofunni, nýtist sem svefnherbergi eða skrifstofa, með nýlegu harðparketi á gólfi. Fataskápur er í herberginu og gluggi veitir góða birtu.
Baðherbergi: Glæsilega endurnýjað baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf með dökkum gólfflísum og hvítum marmaramynstri á veggjum. Svart innrétting með handlaug, upphengt salerni, baðkar með sturtuaðstöðu og handklæðaofn.
Aðkoma og sameign: Snyrtileg aðkoma að húsinu með nægum bílastæðum og vel viðhaldinni sameign innandyra.
Bílastæði: Sér merkt bílastæði á lóð fylgir eigninni. Rafhleðslustaur er við bílastæðið en án hleðslustöðvar.
Sameiginlegt stigahús: Mjög snyrtilegt stigahús, nýlega málað, skipt um teppi og útidyrahurð.
Staðsetningin er góð í grónu hverfi með stuttri leið í alla helstu þjónustu, skóla og útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma
661-6056, gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.