Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@husfasteign.is og Hús fasteignasala kynna í almennri sölu: Túngötu 17 sem er fallegt og vel skipulagt einbýlishús í rólegum botnlanga í Vestmannaeyjum. Húsið er byggt úr steini árið 1957 og er 236,4 m2 þar af er bílskúr 57 m2 byggður árið 2018. Björt og falleg eign á frábærum stað með einstöku útsýni og mikla möguleika. Sér íbúð á neðri hæð með sérinngangi sem getur gefið leigutekjur, einnig er möguleiki á að útbúa íbúð í bílskúr.
Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð undanfarin ár, árið 2018 var eignin kædd og einangruð með lituðu áli, þakkassi sömuleiðis álklæddur, skipt var um flesta glugga fyrir nokkrum árum, búið er að drena meðfram eigninni. Að innan var eldhús, gólfefni og innihurðar endurnýjað fyrir nokkrum árum. Þvottahús nýverið endurnýjað.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@husfasteign.is eða í síma 8611105
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi
Stofa: Parket á gólfi , opið í borstofu, fallegur bogadreginn gluggi.
Eldhús: Flísar á gólfi, snyrtileg hvít innrétting, flísar á milli skápa.
Herbergi: parket á gólfi, góður skápur
Herbergi: parket á gólfi
Baðherbergi: Flísar á gólfi og votrýmum, sturta, upphengt wc, innrétting, handklæðaofn, opnanlegur gluggi,
Þvottahús: Flísar á gólfi, góð nýleg innrétting, vaskur, gengið niður tröppur úr efri hæð, þaðan er hurð í íbúð á neðri hæð.
Neðri hæð, innangeng og einnig sérinngangur
Eldhús: flotað og lakkað gólf, nett innrétting
Stofa: Parket á gólfi
Herbergi: Parket á gólfi
Herbergi: Parket á gólfi
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, sturta, upphengt wc, innrétting:
Geymsla/hitakompa: Steypt gólf, hitagrind og rafmagnstafla
Geymsla: Nett geymsla undir stiga
Bílskúr: Steypt gólf, búið er að einangra þak en það á eftir að einangra veggi. Rafmagn og heitt og kalt vatn, möguleiki á að útbúa íbúð, bílskúrshurð með rafmagnsopnara.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.