Þriðjudagur 17. mars
Fasteignaleitin
Skráð 26. apríl 2025

Þjóðólfshagi 4

EinbýlishúsSuðurland/Hella-851
197.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.500.000 kr.
Fermetraverð
504.564 kr./m2
Fasteignamat
69.600.000 kr.
Brunabótamat
102.020.000 kr.
Mynd af Linda Björk Ingvadóttir
Linda Björk Ingvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2323528
Landnúmer
186337
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Í lagi
Raflagnir
Í lagi
Frárennslislagnir
Í lagi
Gluggar / Gler
Í lagi
Þak
Í lagi
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Margir inngangar
Helgafell fasteignasala og Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali kynna fallegan og vel skipulagðan sumarbústað/einbýlishús ásamt gestahúsi við Þjóðólfshaga 4 í Rangárþingi ytra. Stór og góður pallur í kringum húsið með heitum potti, grillskýli og lóðin kjarri vaxinn. 8.000fm afgirt eignarlóð. Selst með innbúi. Stutt í margar náttúruperlur. 

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár er aðalhæð hússins 84 fm, kjallari 84 fm, svefnloft 15 fm og geymsla 2,2 fm. Heildin á húsinu er því 185,2 fm og gestahúsið er 12 fm. Samtals 197,2 fm. Áður var eignin skráð sem sumarhús en skráð sem einbýlishús í dag. Leyfilegt er að byggja í viðbót, má vera í heild 400 fm og því margir möguleikar í boði.

Sumarbústaður/einbýlishús skiptist í:

Forstofa með fatahengi, flísum og hita í gólfi. 
Eldhús með fínum innréttingum, tengi fyrir uppþvottavél, góðum borðkrók, parket og hita í gólfi. 
Stofa er rúmgóð og björt með parketi og hita í gólfi. Hátt til lofts. Útgengi á stóra verönd. 
Tvö svefnherbergi með hjónarúmi, kommóðu, parketi og hita í gólfi.
Svefnherbergi með koju, 1.5 niðri og einfalt fyrir ofan. Parket og hiti í gólfi. 
Baðherbergi með innréttingu, walk in sturtu, handklæðaofni, upphengdu salerni, hiti í gólfi, flísar í hólf og gólf. Útgengi á veröndina nálægt heita pottinum. 
Svefnloftið er rúmgott með parketi á gólfi. Gott geymslupláss undir súð. Skráð 15 fm en er þó stærra þar sem hluti þess er ekki í fullri lofthæð.
Kjallari er undir öllu húsinu, gengið í gegnum geymslurýmið. Í kjallara er stórt þvottahús, tvö stór geymslurými og tómstundarherbergi. Gólfin eru máluð. 

Gestahús er við hlið hússins og með yfirbyggða verönd fyrir framan. Í húsinu er svefnherbergi með parketi á gólfi og baðherbergi með salerni, vask og opnanlegum glugga. 

Veröndin er stór og kringum allt húsið. Hitaveitupottur fyrir aftan hús ásamt grillskýli. Mörg útiljós fyrir utan og því mjög falleg lýsing á kvöldin. Lóðin er kjarri vaxin á afgirtri eignarlóð. Leiktæki og hænsnakofi á lóðinni. 

Húsið og gestahúsið eru byggð árið 2008. Húsið er timburhús og stendur á steyptum kjallara. Klætt að utan með bjálkaklæðningu og litað járn á þaki. Hiti í gólfum á aðalhæð hússins ásamt ofnum. Gott viðhald hefur verið á húsinu. Nýlegar þakrennur. Baðherbergi endurnýjað. Skipt um öll gólfefni og innihurðar á aðalhæð hússins. Nýlegt þak á gestahúsi og grillskýli.

Þar sem eignin er skráð sem einbýlishús í dag þá sér sveitafélagið um snjómokstur að húsinu og einnig hægt að vera með sorptunnur. 

Mikil hestamennska á svæðinu, stutt í Hestheima. Aðeins klukkstund frá bænum og korter frá Selfossi. Einungis 2 km frá hringveginum.  

** Fasteignamat 2026 verður kr. 69.600.000,- **

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali
s. 868 7048 / linda@helgafellfasteignasala.is


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/07/202244.400.000 kr.44.600.000 kr.197.2 m2226.166 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2008
12 m2
Fasteignanúmer
2323528
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.770.000 kr.

Myndir (63)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 5 íb. 102
Opið hús:18. mars kl 16:30-17:00
Hringhamar 5 íb. 102
221 Hafnarfjörður
104.9 m2
Fjölbýlishús
413
762 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 3 íb. 201
Bílastæði
Opið hús:18. mars kl 16:30-17:00
Baughamar 3 íb. 201
221 Hafnarfjörður
113.7 m2
Fjölbýlishús
413
720 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Klapparhraun 17
Skoða eignina Klapparhraun 17
Klapparhraun 17
851 Hella
93.6 m2
Sumarhús
513
636 þ.kr./m2
59.500.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, íb. 104 Hlutd.lán
Bílastæði
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Hringhamar 37, íb. 104 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
114.8 m2
Fjölbýlishús
413
701 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin