Falleg og rúmgóð 74,3m2 2ja herbergja íbúð fyrir 60 ára og eldri að Árskógum 8 á 11.hæð.
* Húsið hefur fengið gott viðhaldið í gegnum árin
* Húsvörður á staðnum
* Ýmis félagsstarfsemi
* Sameiginlegur matsalur á jarðhæðinni
* Birt stærð samkv. HMS er 74,2m2
Allar nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson, lgf, í síma: 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurNánari lýsing eignar:Komið er inn í rúmgóða forstofu með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísalagt með innangegni sturtu / "Walk in" og nýju sturtugleri. Nýleg baðinnrétting með skolvask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús var endurnýjað 2025 með borðstofa og stofa eru í opnu og björtu rými með parketi á gólfi. Eldhús er með u-laga viðar innréttingu með eldri tækjum og tengi fyrir uppþvottavél. Ásamt innbyggðum ísskáp, frysti og uppþvottavé
Borðstofan og stofan eru rúmgóðar og útgengi er úr stofu á svalir sem eru með svalalokun
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Geymslan er með hillum.
Um er að ræða 2ja herbergja íbúð í eftirsóttu og vel viðhöldu húsi sem er ætlað fyrir 60 ára og eldri sem eru félagsmenn í Félagi eldri borgara. Að auki er í boði mikil þjónusta í húsinu og má meðal annars nefna sameiginlegan matsal á jarðhæðinni sem býður upp á heitan mat í hádeginu. Ýmis félagsstarfsemi fer einnig fram á jarðhæðinni auk þess sem hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa eru starfræktar þar. Góð aðkoma er á lóðina sem er fullfrágengin og með nægum bílastæðum. Stutt í helstu þjónustu, s.s. verslanir, heilsugæslu ofl
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.