Helgafell fasteignasala kynnir nýja þriggja til fimm herbergja fullbúna endaíbúð á annari hæð, merkt 0201 við Áshamar 5 í Hafnarfirði.
Birt stærð: 138,9 fm., þar af er sér geymsla 5,3fm.
Verktaki: JE Skjanni ehf.
Sjá heimasíðu verkefnisins hérLýsing:Anddyri: Harðparket á gólfi og rúmgóður þrefaldur skápur.
Hjónaherbergi: 16,1fm., gott skápapláss og harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 1: 9,6fm., harðparket á gólfi og skápur.
Þar sem
sjónvarpshol er skv. teikningu er auðveldlega hægt að koma fyrir tveimur svefnherbergjum með gluggum.
Stórt eldhús með eyju, opið við stofu - L laga eldhúsinnrétting frá Kappa með góðu skápaplássi. Bosch ísskápur, uppþvottavél, helluborð, gufugleypir og bakaraofn í vinnuhæð. Öll tæki frá Smith&Norland.
Stór stofa/borðstofa: Harðparket á gólfi með útgengi á suðvestur 16,3fm. svalir með góðu útsýni.
Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt í hólf og gólf (flísar frá Agli Árnasyni), upphengt salerni, "Walk-in" sturta. Inn af baðherbergi er flísalagt þvottahús.
Sér
geymsla í sameign á neðstu hæð.
Íbúðin er með gólfhita og er afhent fullbúin með gólfefnum, harðparket á gólfi og flísar í blautrýmum. Einangrun undir gólfhitalagnirnar og anhýdrít ílögn yfir gólfhitalagnirnar.
Endanlegur frágangur gólfefna er hluti af heildarhljóðvist hússins sem tryggir hljóðvist, vandað undirlag og réttan frágang gólfefna.Hvítar 90cm yfirfelldar hurðir frá Parka með 90cm ljósopi.
Dyrasímakerfi með myndavél uppsett.
Ljósleiðari kominn í hús og inn í smáspennutöflu hverrar íbúðar.
RJ45 nettengi eru uppsett og tengd inn í smáspennutöflu. Loftnet er komið inn í smáspennutöflu.
Í sameign er
hjóla- og vagnageymsla.Teppalagðir stigagangar með góðri lýsingu. Glerlokun með hurð frá stigagangi inn á íbúðarpalla á hverri hæð.
Lyfta gengur inn í íbúðarpallana á hverri hæð.
Vandaðar brunahurðir frá Parka inn í íbúðirnar.
Sameiginleg 95 stæði á lóðinni.
Búið er að leggja rafmagnslagnir að hluta af stæðum án tengingar, sem hugsaðar eru fyrir rafmagnsbíla.
Barnvænt hverfi, undirgöng nálægt húsinu og er því góð gönguleið í skóla þar sem ekki er þörf að fara yfir umferðargötu á leið í skólann. Nýr leikskóli í götunni.
ATH: Myndir af íbúðinni geta verið úr samskonar eða svipaðri íbúð.
ATH: Svalalokanir sem sjást á tölvugerðri mynd eru ekki afhentar með íbúðunum.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við sölumenn Helgafells fasteignasölu.