GUNNAR VALSSON OG LIND FASTEIGNASALA KYNNA:
Einstaklega vandað og vel skipulagt fjögurra svefnherbergja raðhús á vinsælum og eftirsóttum stað í Akrahverfi í Garðabæ.
Um er að ræða glæsilega og fjölskylduvæna eign þar sem vandað hefur verið til verka. Húsið er bjart, vel skipulagt og býður upp á rúmgóð alrými, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, sjónvarpsherbergi, skrifstofurými, bílskúr og fallegan garð sem snýr til suðausturs.Sérsmíðaðar, hágæða HÄCKER-innréttingar frá Eirvík í eldhúsi og baðherbergjum.
SMEG eldhústæki og ísskápur í eldhúsi.
Þriggja sentímetra marmaraplötur frá
S. Helgason á eldhúsi og baðherbergjum.
Innbyggð
Vola- og Hansa-blöndunartæki á baðherbergjum.
Gegnheilt
eikarparket frá Birgisson og flísar á blautrýmum.
Sérsmíðaðar, gereftislausar innihurðir frá JP innréttingum.
Sérsmíðað handrið í stiga úr byssustáli frá Suðulist.
Gólfhiti á báðum hæðum með þráðlausum stýringum frá Danfoss í hverju herbergi.
Innbyggð
LED-lýsing.Innangengt í rúmgóðan
bílskúr með epoxy á gólfi.
Hitað bílaplan.
Lagnir fyrir
heitan pott eru til staðar í garði.
Nánari lýsingNeðri hæðKomið er inn í rúmgóða
forstofu með miklu skápaplássi. Á neðri hæð er einnig
baðherbergi með sturtu og fallegri innréttingu.
Frá forstofu er innangengt í
bílskúr þar sem epoxy er á gólfi. Í bílskúrnum er innrétting og gott skápapláss.
Eldhús, borðstofa og stofa mynda bjart og opið alrými. Eldhúsið er glæsilegt, með góðu skápaplássi, stórri vinnueyju, gaseldavél og vönduðum tækjum.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar með gólfsíðum gluggum og þaðan er útgengt í fallegan garð sem snýr til suðausturs. Í garðinum er gert ráð fyrir heitum potti og eru lagnir fyrir hann þegar til staðar.
Efri hæðTeppalagður stigi með þakglugga leiðir upp á efri hæð hússins.
Á efri hæð eru
fjögur svefnherbergi. Þar af eru þrjú rúmgóð barnaherbergi, öll með fataskápum. Hjónaherbergið er rúmgott, með miklu skápaplássi og útgengi á stórar svalir sem snúa til norðvesturs.
Baðherbergið á efri hæð er vel útbúið með sturtu, baðkari og fallegri innréttingu. Þá er á hæðinni rúmgott
sjónvarpsherbergi sem nýtist vel sem fjölskyldurými.
Þvottahúsið er vel skipulagt, með góðum innréttingum og flísum á gólfi. Einnig er stórt og opið skrifstofurými á hæðinni, sem er skráð sem geymsla á teikningum.
SamantektHér er á ferðinni einstaklega vönduð og fjölskylduvæn eign á eftirsóttum stað í Garðabæ. Húsið er vel skipulagt, bjart og rúmgott, með fjórum svefnherbergjum, fallegum alrýmum, góðu geymsluplássi, bílskúr og suðausturgarði.
Ekkert hefur verið til sparað við val á innréttingum, gólfefnum, tækjum og frágangi. Skólar fyrir öll aldursstig eru í göngufæri og hverfið er sérlega vinsælt meðal fjölskyldufólks.
Húsið var sprunguviðgert og málað sumarið 2025.Eign sem vert er að skoða.ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR GUNNAR VALSSON LÖGG FASTEIGNASALI Í S: 699-3702 / GUNNAR@FASTLIND.IS