-Þvottahús innan íbúðar
-Baðkar og sturta
-Snyrtileg sameign með tveimur lyftum
-Svalir í suðvesturáttÍbúðin er skráð 126,0 fm samkvæmt HMS.
Virkilega falleg og björt eign með þremur rúmgóðum svefnherbergjum.
Parket á gólfum í herbergjum, stofu og gangi og hvítir gólflistar.
Flísalagt í votrýmum, baðherbergi, þvottahúsi, forstofu og eldhúsi.
Sjónvarpskrókur í stofu er með hljóðvist á vegg.
Svalirnar eru í sólríkar og skjólríkar og fordæmi eru fyrir yfirbyggingu.
Húsið er klætt að utan og viðhaldslétt.
Sameign er með myndavéladyrasíma við inngang, tveimur lyftum auk stigagangs.
Næg bílastæði fyrir eru framan hús og hleðslustöð á sameiginlegu bílastsæði.
Nánari upplýsingar veita:
Ævar Jóhanns Lgf - s:861-8827 / aj@palssonfasteignasala.isNánari lýsing:Gengið er inn í flísalagða
forstofu með góðu skápaplássi.
Þvottahús er inn af forstofu og var nýlega tekið í gegn. Rúmgott með flísalagt gólf, nýja innréttingu, gott skipulag, gott skápapláss og vaskur.
Baðherbergi er með hita í gólfi, sturtu og baðkari og nýlega uppgert að hluta til. Stílhreint með dökkum gólfflísum, handklæðaofni, upphengdu salerni og vaskinnréttingu með spegli og upphengdum speglaskáp.
Hjónaherbergi er rúmgott, parketlagt og með skápavegg.
Tvö önnur svefnherbergi eru einnig parketlögð og með loftháum skápum.
Eldhús er flísalagt með dökkum flísum, innrétting er hvít með bakaraofni í vinnuhæð og háf yfir helluborði.
Stofan er parketlögð og rúmar vel sjónvarpskrók og borðstofu.
Úr henni er útgengt út á
svalir sem eru í suðvesturátt og með góðu útsýni.
Sérgeymsla er í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla er einnig í sameign.
Næg bílastæði að utan og sameiginleg hleðslustöð.
Loftræsikerfi nýlega yfirfarið.
Eignin er frábærlega staðsett í eftirsóttu hverfi í 203 þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri.
Matvöruverslun, frábært íþróttasvæði HK upp í Kór, leikskólar og grunnskóli.
Elliðavatn, Guðmundarlundur og ósnert náttúran í Heiðmörk nánast innan seilingar og sjáanleg af svölunum.
Góð eign fyrir litlar fjölskyldur og einnig tilvalin fyrir þá sem eru að minnka við sig.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.