*** Karfavogur 11 - 104 Reykjavík *** Opið hús: Eignin verður sýnd þriðjudaginn 26. ágúst 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
PRIMA Fasteignasala og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: 4ra herbergja 103,2 fm kjallara íbúð á góðum stað í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu og gang, björt og rúmgóð stofa, fallegt eldhús, baðherbergi, 3 rúmgóð svefnherbergi. Sameiginlegt þvottahús. Karfavogur er vel staðsettur í Vogahverfinu í Reykjavík. Stutt er í skóla, og alla aðra þjónustu. Verslunarkjarninn í Glæsibæ auk Skeifunnar í göngufæri. Líkamsræktarstöðvar og Laugardalurinn eru í næsta nágrenni. Góð eign fyrir fyrstu kaup.
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLITNánari lýsing:Forstofa/Hol: Gengið er inn um sér inngang, forstofa parketlögð með fatahengi og úr holi er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar.
Eldhús: Rúmgott og bjart, nýlega fært og endurnýjað, hvítir skápar og dökk borðplata. borðkrókur. parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðastöðu.
Stofa: Rúmgóð 18,7fm með parketi og gluggum í tvær áttir.
3 Svefnherbergi: Rúmgott 14,8fm
hjónaherbergi með fataskáp og
tvö barnaherbergi, annað er 10,7 með fataskáp og hitt er 14,7fm. Öll með parketi á gólfi.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús, þurrk-herbergi
Garður: Stór gróinn suður garður.
Annað:Þakjárn var endurnýjað ca. 2006.
2016: Skolp var endurnýjað í kjallara og lagnir myndaðar, hluta skipt út, hluti fóðraður. Í kjölfarið skipt um öll gólfefni á íbúðinni. Eldhús fært, nýjar lagnir og rafmagn í eldhúsið.
2020: Nýjar lagnir í baðherbergi
2020: Þakrennur og niðurföll endurnýjuð, þráður til að bræða snjó
2017: Fataskápar í hjónaherbergi
2024: Hurðir innan íbúðar endurnýjaðar
Stutt í alla helstu þjónustu, skólar og leikskólar í göngufæri.
Nánari upplýsingar veita:Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s.787-3505 /
oliver@primafasteignir.is__________________________________________________________________________________________
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRIMA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.