
Viltu fasteignasala kynnir fallegt samliggjandi hús á baklóð við Njálsgötu 38 í 101 Reykjavík. Um er að ræða 46,7 fm tveggja herbergja sérbýli. Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, svefnherbergi og salerni. Einnig er gott geymsluloft.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar, þaðan sem stutt er í iðandi mannlíf, veitingahús, afþreyingu, verslun og þjónustu.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Nánari lýsing:
Anddyri: Er með flísalögðu gólfi.
Eldhús: Er bjart með hvítri eldhúsinnréttingu. Flísar er á gólfi.
Stofa: Er björt í sameiginlegu rými með eldhús. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Með hvítri innréttingu, svörtum blöndunartækjum upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Geymsla: Gott geymslulofti er yfir forstofu.
Garður: Er skjólgóður og er sameiginlegur með tveimur öðrum húsum sem standa á lóðinni.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 15/05/2024 | 44.650.000 kr. | 44.000.000 kr. | 46.7 m2 | 942.184 kr. | Já |
| 19/09/2012 | 13.450.000 kr. | 16.500.000 kr. | 46.7 m2 | 353.319 kr. | Já |
| 09/08/2011 | 11.950.000 kr. | 15.500.000 kr. | 46.7 m2 | 331.905 kr. | Já |
| 03/08/2006 | 10.280.000 kr. | 12.800.000 kr. | 41.4 m2 | 309.178 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
101 | 45.3 | 56,5 | ||
101 | 51 | 54,9 | ||
101 | 64.6 | 54,9 | ||
101 | 66 | 54,9 | ||
101 | 48.7 | 54,9 |