Þriðjudagur 22. september
Fasteignaleitin
Skráð 22. sept. 2026

Fannafold 70

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
101.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
71.500.000 kr.
Fermetraverð
707.221 kr./m2
Fasteignamat
70.800.000 kr.
Brunabótamat
53.650.000 kr.
Mynd af Sölvi Þór Sævarsson
Sölvi Þór Sævarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1988
2. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2041540
Landnúmer
110026
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar lagnir
Raflagnir
Upphaflegar raflagnir
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Upphaflegir
Þak
Upphaflegt þak
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðvestursvalir
Lóð
22,35%
Upphitun
Ofnalagnir
Inngangur
Sérinngangur
Valhöll og Sölvi Þór Sævarsson lgfs, kynna í sölu: Bjarta og vel skipulagða 4ra herberja sérhæð í fjórbýli með sérinngangi á 2. hæð við Fannafold 70 í Reykjavík.
Gott útsýni er úr íbúðinni að sjó í vestur. Stór sameiginlegur garður með neðri hæð. Bílskúrsréttur fylgir íbúðinni. Eign sem þarfnast standsetingar og býður upp á mikla möguleika.
 
Eignin er í heild skráð 101,1 m² skv. Hms. Geymsla er innan íbúðar með opnanlegum glugga og getur verið þriðja svefnherbergið. Einnig er gott geymsluloft yfir íbúðinni með glugga.
Fasteignamat 2027 verður 71.00.000.-   Byggingarár er 1994.


Íbúðin skiptist í forstofu, geymslu/herbergi við anddyri, hol, barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, eldhús með borðkrók, þvottahús, borðstofu og stofu. Rúmgott geymsluloft er yfir stórum hluta íbúðarinnar með glugga.
Sérmerkt bílastæði á lóð ( bílskúrsplötu)  gengt húsinu fyrir tvo bíla þar sem mögueliki er að byggja bílskúr.

Allar nánari uppl.  veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064/ solvi@valholl.is 

Nánari lýsing.
Forstofa – Með fatahengi og dúk á gólfi.
Herbergi/ geymsla – Inn af forstofu með dúk á gólfi.
Stofa – Á hægri hönd þegar komið er inn í íbúð með úrbyggðum glugga þar sem borðstofa er staðsett í dag. Hurð út á stórar rúmgóðar svalir sem nýbúið er að lagfæra. Gott útsýni er af svölum og úr borðstofu að sjó í vestur og að Geldinganesi.
Dúkur á stofurými og flísar í borðstofu við úrbyggðan glugga
Barnaherbergi – Með fataskáp og dúk á gólfi.
Hjónaherbergi – Ágætlega rúmgott með fataskáp og dúk á gólfi.
Baðherbergi – Sturturými með botni og flísum á veggjum þar við, glerþil við sturtu. Handlaug á vegg og handklæðaskápur. Dúkur á gólfi.
Eldhús – Eldri innrétting og borðkrókur við glugga í eldhúsi. Farið er í þvottahús sem er inn af eldhúsi.
Þvottahús – Inn af eldhúsi með skolvask, dúk á gólfi og opnanlegum glugga.
Aukaherbergi/ geymsla í risi – Gott geymslurými sem býður upp á ýmsa möguleika. Dúkur á milligólfi og gluggi í geymslurýminu. Lúga í lofti með stiga að geymslulofti.

Innréttingar og gólfefni: Innréttingar eru upprunalegar að mestu, hurðir og fataskápar eru úr eikarvið. Gólfefni, Linoleum dúkur er á mest allri íbúðinni að undanskildum útbyggðum glugga þar sem eru flísar.

Núverandi eigendur hafa ekki búið í íbúðinni og geta því ekki gefið tæmandi upplýsingar um eignina. Kaupendur eru hvattir til að kynna sér vel ástand eignarinnar. 

Sérstök réttindi séreignahluta. Sérafnotafletir á lóð (vestan við húsið) fylgja eignum (0101) og (0102). Þeir ná 2,9 metra hornrétt út frá afmörkun íbúða og 4,3 metra út frá afmörkun blómaskála meðfram hlið hússins (eins og sýnt er á samþykktum teikningum).
Bílskúrsréttindi. Samkvæmt þinglýstri skiptayfirlýsingu frá 6. mars 1990 fylgir 59 m² bílskúrslóð sem hefur staðgreini 2.854.102 íbúðum (0101) og (0201). Samkvæmt samningnum er óheimilt að selja lóðina frá húsinu,
Fannafold 68-74. Bílastæði. 4 bílastæði eru á lóðinni og eru þau í sameign allra í matshluta 01. Á bílskúrslóð fyrir Fannafold 68-70 sem hefur staðgreininn 2.854.102, eru tvö bílastæði fyrir íbúðir 0101 og 0201 í matshluta 01.
Tilheyrir nyrðra stæðið eign (0201) og er merkt Fannafold 70, en syðra stæðið tilheyrir eign (0101) og er merkt Fannafold 68.

Upplýsingar frá seljendum með framkvæmdir síðustu ára.
- 2026: Svalir endurnýjaðar.
- 2023: Húsið var málað að utan.
- 2022 : Þak málað.
- 2021: skipt um rennur.
 
Hússjóður: Húsgjöld eru 17.458.- kr á mánuði. 
Væntanlegar framkvæmdir hjá húsfélagi: Skipta á um hurðir og karm í geymslu sameignar undir stigum veggja vegna.
Áætlaður kostnaður er c.a 100-150.000.- pr íbúð. Ekki er safnað sérstaklega í sjóð fyrir því. Framkvæmdir eru áætlaðar í október 2026.

Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 / solvi@valholl.is 
 – eða skrifstofa / s.588-4477 / valholl@valholl.is

 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.

 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sóltún 18
Skoða eignina Sóltún 18
Sóltún 18
105 Reykjavík
101.3 m2
Fjölbýlishús
312
868 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Sóltún 16
Bílastæði
Opið hús:27. sept. kl 14:30-15:00
Skoða eignina Sóltún 16
Sóltún 16
105 Reykjavík
97 m2
Fjölbýlishús
312
875 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Laufrimi 87
3D Sýn
Heitur pottur
Skoða eignina Laufrimi 87
Laufrimi 87
112 Reykjavík
182 m2
Raðhús
623
758 þ.kr./m2
137.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunteigur 24
Skoða eignina Hraunteigur 24
Hraunteigur 24
105 Reykjavík
119.3 m2
Fjölbýlishús
514
795 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin