Miðvikudagur 12. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 12. ágúst 2026

SPÁNAREIGNIR - San Cayetano

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
105 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
35.800.000 kr.
Fermetraverð
340.952 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
106120826
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Í LITLU FJÖLBÝLI* *2 EÐA 3 SVEFNHERBERGI* *SÉR STÆÐI OG GEYMSLA Í KJALLARA* *SJARMERANDI SPÆNSKUR BÆR NÁLÆGT STRÖNDUM MAR MENOR OG GLÆSILEGUM GOLFVÖLLUM*


Fallega hannaðar 2ja / 3ja svefnherbergja og 2 baðherbergja íbúðir, umkringdar stórum grænum svæðum, sundlaugum og líkamsræktaraðstöðu. Örskammt frá ströndum Murcia og á einu hagstæðasta verði á spænska fasteignamarkaðnum í dag. Íbúðir á jarðhæð eru með sérgarði en þakíbúðir eru með glæsilegum þaksvölum. San Cayetano er dæmigerður spænskur bær, aðeins 10 mínútur frá San Javier og ströndum Mar Menor. Öllum íbúðum fylgir sér stæði í og geymsla í kjallara. Stórir sameiginlegir garðar með tveimur stórum sundlaugum og líkamsræktaraðstöðu.

Aðeins 10–15 mínútna akstur til San Javier, fallegu stranda Mar Menor og gamla bæjarins í Los Alcázares, sem er fullur af karakter og sjarma, með smábátahöfn og notalegri göngugötu við sjávarsíðuna.

Einnig eru fjölmargir golfvellir í nágrenninu, þar á meðal Roda Golf, Mar Menor Golf, Serena Golf, Las Colinas, Las Ramblas, Villamartín og fleiri.
Um það bil 60 mínútna akstur til Alicante og um 25 mínútur til Cartagena, líflegrar spænskrar borgar.

Nánari upplýsingar:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, sími 0034 615 112 869 
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is, sími 00354 893 2495


NÁNARI LÝSING:
Rúmgóðar og vel hannaðar íbúðir í litlu fjölbýli. 2–3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, með eldhúsi, stofu og borðkrók í vel skipulögðu opnu rými. Allar íbúðir eru með rúmgóðum svölum/veröndum. Íbúðir á efstu hæð eru einnig með stórum einkaþaksvölum en íbúðir á jarðhæð eru með sérgarði, sumar hverjar með sérstaklega rúmgóðu útisvæði. Öllum íbúðum fylgir sér stæði og sér geymsla. Sameiginlegt svæði með frábærri aðstöðu, þar á meðal tveimur sundlaugum, líkamsræktaraðstöðu og fallegum grænum svæðum.

VERÐ, miðað við gengi 1EVRA=145ISK.
2 svefnherbergi / 2 baðherbergi frá €226.900 (ca. 32.900.000 ISK)
3 svefnherbergi / 2 baðherbergi frá €246.900 (ca. 35.800.000 ISK)


Íbúðir á jarðhæð eru með einkaverönd/einkagarði.
Íbúðir á efstu hæð eru með stórum einkaþaksvölum.

Áætluð afhending: mars 2028

Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábærum stað.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.

Mar Menor svæðið er mjög vinsæll sumarleyfisstaður og þar er góð aðstaða til stunda sjóíþróttir. Einnig er í boði fjölbreytt afþreying og ýmsar skemmtilegar uppákomur allt árið um kring. Gott aðgengi að allri nauðsynlegri þjónustu, s.s. heilsugæslu, apótek, verslanir og fjölbreytt úrval af góðum veitingastöðum og tapasbörum.

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, bílakjallari, þakverönd, sér garður, strönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, Mar Menor,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
106120826

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bygggarðar 27
Skoða eignina Bygggarðar 27
Bygggarðar 27
170 Seltjarnarnes
105.6 m2
Fjölbýlishús
312
1183 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Rekagrandi 7
Bílskúr
Skoða eignina Rekagrandi 7
Rekagrandi 7
107 Reykjavík
125.7 m2
Fjölbýlishús
413
715 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Leirdalur 8
Á einni hæð
Skoða eignina Leirdalur 8
Leirdalur 8
260 Reykjanesbær
87.3 m2
Raðhús
312
801 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - San Cayetano
Bílastæði
Efsta hæð
SPÁNAREIGNIR - San Cayetano
Spánn - Costa Blanca
240 m2
Fjölbýlishús
323
184 þ.kr./m2
44.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin