Fasteignasalan Torg og Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, kynna með stolti: ***Fallegt, rúmgott og vel viðhaldið einbýlishús á góðum stað í Reykjanes*** Um er að ræða afar fallegt og rúmgott 232m2 einbýlishús með bílskúr á eftirsóttum stað í Keflavík. Húsið skiptist í forstofu, fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús og bílskúr. Eignin einkennist af fallegri hönnun, sérhönnuðum innréttingum og góðri lofthæð sem gefur rýmistilfinningu. Möguleiki á íbúðarskiptum. Nánari lýsing: Aðkoman er snyrtileg með stóru, upphituðu stimpluðu bílaplani. Forstofa er flísalögð og með góðu skápaplássi. Þaðan er gengið inn í rúmgott hol með parketi á gólfi. Stofan er björt og rúmgóð með mikilli lofthæð og stórum gluggum sem hleypa inn góðri birtu. Þar er einnig arinn og sjónvarpsrými með útgengi út á verönd. Borðstofa er í opnu rými og parketlögð, hentug fyrir stærri samverustundir. Eldhúsið er flísalagt og með vandaðri, sérsmíðaðri innréttingu með miklu skápaplássi ásamt góðum tækjum. Þar er einnig notalegur borðkrókur. Svefnherbergin eru fimm, öll með parketi og fataskápum. Baðherbergi I er flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni, fallegri innréttingu, baðkari með sturtu og handklæðaofni. Baðherbergi II er inn af hjónaherbergi og er einnig flísalagt. Þar er upphengt salerni, góð innrétting, sturta og handklæðaofn. Þvottahúsið er flísalagt með rúmgóðri innréttingu og góðu skápaplássi. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og gengið þaðan inn í bílskúr. Bílskúrinn er flísalagður með rafdrifinni hurð og geymslulofti. Þar eru einnig gluggar og útgönguhurð út á bílaplan. Að utan er stór og afgirt verönd með fallegum viðarpalli og heitum potti. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.