
Heima fasteignasala kynnir Haukahlíð 10 – Íbúð 133. Sólpallur - 26,5 fm!
Kynntu þér sameignakaup - 75% leið! 52.425.000 kr.
S8-Sameign í boði:
Fáðu nánari upplýsingar á sölusíðu eignarinnar. Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 5832000. Hafðu samband og bókaðu skoðun hjá okkur.
2ja herbergja íbúð á 1. hæð. Birt stærð er 59,2 fm þar af 6,3 fm geymsla. Íbúðinni fylgir 26,5 fm sólpallur í vestur. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á pall, svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Íbúðin afhendist með innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og vinylgólfefni frá Berry Alloc. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Mjöll 1.
Nánari lýsing: Í anddyri er fataskápur. Gengið er inn í alrými, 23,1 fm, með eldhúsi og stofu/borðstofu, gólfsíðum gluggum og útgengi á sólpall í vestur. Hvít eldhúsinnrétting, ljósar steinplötur á borðum, blöndunartæki frá Mariner og innbyggður ísskápur. Svefnherbergi er 11,8 fm með fataskáp. Baðherbergi er með „walk-in“ sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Steingráar flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur með lýsingu. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Viðhaldsfrítt og slitsterkt vinylgólfefni í ljósri eik á íbúðinni. Geymsla fylgir íbúðinni.
Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi sem er í eigu S8 ehf. en úthlutað er föstum leigusamningum til ákveðinna íbúða til 10 ára að lágmarki. Kaupendur geta valið að gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Á heimasíðu verkefnissins, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.
Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
101 | 54,7 | 54,9 | ||
102 | 57,1 | Tilboð | ||
102 | 57,1 | Tilboð | ||
101 | 51,6 | 49,9 | ||
600 | 69,9 | 58,9 | ||
110 | 56,2 | 48,5 |