NADIA KATRÍN OG PRIMA FASTEIGNASALA KYNNA: MIKIÐ ENDURNÝJAÐ 174FM SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Á 2.HÆÐ Í SÍÐUMÚLA. FIMM SKRIFSTOFUR, FUNDARHERBERGI, ELDHÚS, RÚMGÓÐ MÓTTAKA SEM EINNIG VÆRI HÆGT AÐ BREYTA Í SKRIFSTOFU.
Lýsing eignar:Mikið endurnýjað og snyrtilegt 174fm skrifstofuhúsnæði á annari hæð í Síðumúla.
Gengið er inn á hægri hlið hússins upp á aðra hæð. Komið er inn í rúmgóða móttöku með viðarþiljum á veggjum að hluta til.
Eignin telur í dag fimm rúmgóðar skrifstofur og gott fundarherbergi. Eldhúsið er með hlýlegri innréttingu og góðum borðkrók.
Rúmgott salerni með innréttingu og upphengdu salerni. Skrifstofurnar eru rúmgóðar og bjartar og væri auðvelt að bæta við sjötta rýminu. Fundarherbergið er innst á ganginum með 8mm hertu gleri og nýlegum 22mm hljóðdempandi hnotu lituðum þiljum.
Gólfefnið er allt nýlega endurnýjað með hljóðdempandi undirlagi og er öll lýsing með orkusparandi LED perum.
Flestir stokkar, tenglar og rofar verið endurnýjaðir og skipt var um hitastilla á flestum ofnum ásamt hitastilli fyrir þennan eignarhluta í lagnaherbergi sameignar. Falleg og mikið endurnýjuð eign sem býður upp á mikla möguleika miðsvæðis í höfuðborginni.
Sérstaklega undanþegið fylgifé:[tilgreina hluti sem ekki eiga að fylgja, s.s. upphengdir skápar, hleðslustöð fyrir bíl, gervihnattadiskur o.sf.v]
Nánari upplýsingar veita:Nadia Katrín Banine löggiltur fasteignasali / s.6925002 / nadia@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.