SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTT RAÐHÚS MEÐ STÆÐI Í BÍLAKJALLARA* *SÉR GEYMSLA* *FRÁBÆRT VERÐ*Falleg raðhús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum í bænum Santa Rosalía – í stuttri fjarlægð frá Santa Rosalía Lake & Life Resort, en utan sjálfs orlofssvæðisins. Með einkaverönd, sameiginlegri upphitaðri sundlaug, bílastæði og geymslu í kjallara. Þessar eignir eru í vel staðsettu íbúðahverfi og gera kaupendum kleift að njóta hins eftirsótta Miðjarðarhafslífs fyrir afar samkeppnishæft verð. Frábært tækifæri fyrir þá sem leita að gæðum, rúmgóðu húsnæði og góðu verði í hjarta Murcia-héraðs.
Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034 0034 615112869.Nánari lýsing: Á jarðhæð er gengið inn í bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda heild með beinu aðgengi út á verönd. Inn af eldhúsi er baðherbergi og þaðan er útgengt á litla verönd. Á annarri hæð eru tvö svefnherbergi og baðherbergi. Húsin eru ýmist með tveimur eða þremur svefnherbergjum og þriðja herbergið er að finna á þriðju og efstu hæð. Þaðan er útgengi út á þaksvalir með útieldhúsi og góðri sólbaðsaðstöðu. Svefnherbergi eru öll með góðum fataskápum. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Sérmerkt bílastæði og geymsla í bílakjallara fylgja. Í sameign er upphituð sundlaug.
Stutt og greið leið er að ströndum Mar Menor og bænum Los Alcázares, sem er einn vinsælasti áfangastaður Costa Cálida. Um það bil 1 klukkustundar akstur er frá Alicante-flugvelli og aðeins um 20 mínútur frá Corvera, nýja alþjóðaflugvellinum í Murcia. Staðsetningin er einstaklega góð og stutt er á strendur, golfvelli, flugvöll og alla helstu daglega þjónustu.
Verð (gengi 1EVRA=145ISK)3ja herb. (tvö svefnherbergi + tvö baðherbergi): verð frá 229.900 Evrum (33.300.000ISK) + kostn. við kaupin.
4ra herb. (þrjú svefnherbergi + tvö baðherbergi): verð 239.900 Evrum (34.800.000ISK) + kostn. við kaupin Húsin eru tilbúin til afhendingar í júní 2027.
Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandaðaða eign með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni. Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld. Að meðaltali eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.
Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, verönd, golf, sundlaugargarður,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,