Möguleiki að kaupa eignina án íbúðar á jarðhæðHeimaey fasteingnasala kynnir eignina Illugagata 7B 900 Vm. sem er stór og góð eign í tvíbýlishúsi.
Eignin er byggð árið 1955 úr steini. Stærð: 251.4m2 að heildarstærð, og þar af er íbúð á neðstu hæð 62 m2 og bílskúr 40 m2. Eignin skiptist: Aðalhæð 108,6 m2, ris 43,9 m2 en gólfflötur er töluvert meiri þar sem hluti eignar er undir súð. 2ja herbergja íbúð á neðstu hæð er 58,9 m2 og bílskúr 40 m2. Átlað að gólfflötur sé ca. 286 m2.´
Eignin telur miðhæð og ris, íbúð á jarðhæð, ásamt bílskúr. Eignin hefur verið rekin sem farsælt gisitheimili og verið vel til haldið. Annar eigandi er að 2 herbergja íbúð á jarðhæð norðanmegin.
Eignin telur:Aðalhæð/Miðhæð:Anddyri, flísar á gólfi.
Hol: flísar á gólfi.
Herbergi 1, opið inn í sólstofu, flísar á gólfi.
Sólskáli, út frá herbergi, frábært útsýni yfir eyjuna.
Herbergi 2, (mjög stórt) parket á gólfi.
Herbergi 3, parket á gólfi, gott skápapláss.
Eldhús, ágæt innrétting, vel skipulagt.
Snyrting, nett innrétting, baðkar/sturta, flísar í hólf og gólf.
Efri hæð/Ris:Herbergi 4, parket á gólfi, panill á veggjum. Innbyggðir skápar.
Herbergi 5, parket á gólfi, panill á veggjum. Innbyggðir skápar.
Herbergi 6, parket á gólfi, hvíttaðir veggir. Innbyggðir skápar.
Baðherbergi, flísar á gólfi.
Geymslurými undir súð.
Pallur og brunaútgangur bæði vestan og austan.
Þvottahús, stigi úr eldhúsi leiðir niður í þvottahús, dúkur á gólfi, gott rými, skápar, hillur.
Pallur, útgangur í austur að baklóð og bílskúr. Íbúð á jarðhæð með sérinnangi:Herbergi 7, flísar á gólfi, vaskur.
Herbergi 8, flísar á gólfi, eldunaraðstaða.
Snyrting, flísar á gólfi, flísaplötur á veggjum, sturta.
Hurð inn í þvottahús. Bílskúr: 40m2. Byggður 2000. Ný bílskúrshurð. Bílskúrinn er einangraður og klæddur og nýttur sem gistirými í dag. Hægt að nýta sem viðbót í gistingu.
Gistiheimilið telur samtals 7 svefnherbergi, 18 manns í rúm í 2ja, 3ja og 4ra manna herbergjum. Gistiheimilið selst með öllu tilheyrandi (að undanskildum fáum persónulegum munum). Um er að ræða rúm, rúmföt, sængur, kodda, sjónvörp, þvottavélar og aðra innanstokksmuni.
Einnig er hægt að kaupa eignina án reksturs.
Eigandi skoðar að taka minni eign upp í, í eyjum, á suðurlandi eða á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er gott tækifæri til að eignast Gistiheimili sem er í góðum rekstri og gefur góðar tekjur. Það hefur byggt upp gott orðspor, hefur góðar einkunnir og endurgjöf á bókunarsíðum og hægt að halda bókunar samböndum áfram.