Nýtt á skrá! Sunnusmári 11 (204) - Bókið skoðun!
Glæsileg fullbúin 5 herb. íbúð (4 svefnherbergi) með stæði í bílakjallara, stórri geymslu og svölum til suðvesturs!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar glæsilega og vandaða 153,1 fermetra íbúð á 2. hæð (204) í fallegu nýju lyftuhúsi byggðu af ÞG Verk við Sunnusmára 11 í Kópavogi. Sérmerkt stæði í bílakjallara og rúmgóð 12,1 fermetra geymsla í kjallara. Lyfta gengur beint niður í geymslugang og bílakjallara. Svalir snúa til suðvesturs inn í bakgarð hússins.
Öll eldhústæki fylgja með íbúðinni s.s. innb. kæliskápur með frysti, innb. uppþvottavél, spansuðu helluborð, bakaraofn og eyjuháfur. Vandaðar innréttingar frá GKS eru í íbúðinni. Fallegt harðparket er á gólfum og gardínur í öllum gluggum. Myndavéladyrasími er í íbúðinni og verið er að klára grunnkerfi fyrir rafhleðslustöðvar í bílakjallara.
Húsið, sem er byggt af ÞG Verk, er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Fallegur sameiginlegur garður til suðvesturs sem verður fullfrágenginn.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS
Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús með eyju í alrými með stofu/borðstofu, 4 svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottaherbergi. Útgengt á góðar svalir til suðvesturs úr stofu. Sérgeymsla og sérstæði í bílakjallara.
Anddyri: Með fataskápum frá GKS.
Stofa: Rúmar setustofu/borðstofu. Opin við eldhús. Útgengi á svalir.
Svalir: Til suðvesturs inn í skjólgóðan garð.
Eldhús: Með eldhúsinnréttingu með eyju frá Nobilia (GKS) og öllum eldhústækjum (Blástursofn, spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél, innbyggður kæliskápur með frysti og eyjuháfur).
Baðherbergi: Með fallegum flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Innrétting við vask, speglaskápur, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Gestasnyrting: Með flísum á gólfi, salernig og vask
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél/þurrkara.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, glugga til suðvesturs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðausturs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðausturs.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðausturs.
Bílastæði: Er sérmerkt í bílakjallara. Möguleiki á rafhleðslustöð.
Geymsla: Er staðsett í geymslugangi og er 12,1 fermetrar að stærð.
Sunnusmári er nýtt hverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla. Sunnusmári er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í íbúðarhverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.
Byggingaraðili er ÞG Verk sem eru með yfir 20 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína.
Innréttingar: Í eldhúsi og baðherbergi eru frá þýska framleiðandanum Nobilia (flutt inn af GKS) og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnrétting er með ljósri áferð. Fataskápar eru hvítir. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar á baðherbergi.
Eldhústæki: Íbúðinni fylgja vönduð eldhústæki. Íbúðinni er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.
Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturta er með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Þvottahús er í sér rými.
Aðalhönnuður: Er teiknistofan ARKIS ehf. Hanna verkfræðistofa ehf. sér um hönnun burðarvirkis, Teknis ehf. um hönnun lagna og Lumex um raflagnahönnun.