Föstudagur 25. september
Fasteignaleitin
Opið hús:28. sept. kl 16:30-17:30
Skráð 24. sept. 2026

Ásvellir 7 - 402

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
78.8 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
925.127 kr./m2
Fasteignamat
2.376.750.000 kr.
Mynd af Sigríður Rut Stanleysdóttir
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
4. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2517747_39
Landnúmer
229960
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
svalir
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir : Vandaðar nýjar 2-4ra herbergja íbúðir að Ásvöllum 3-9,  þar sem allt byggingarefnir uppfyllir ströngustu umhverfiskröfur.  Íbúðirnar eru með Svansvottun samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar,  sem tryggir hágæða innivist, frábæra hljóðvist og fullkomið loftskiptakerfi sem tryggir hreint loft og hámarks heilbrigði.
Glæsileg 78,8fm tveggja herbergja íbúð á fjórðu hæð merkt 402  í nýju 24 íbúða fjölbýlishúsi ásamt stæði í bílgeymslu. Geymsla íbúðar er skráð : 12,9fm. Eignin skiptst í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi, geymslu og stæði nr B97 í bílageymslu. Ásvellir 7 er nýtt 4 hæða fjölbýlishús sem er einstaklega vel staðsett við Haukaheimilið og Ásvallalaug. Stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Traustur byggingaaðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. 
Sjá inná ÁSVELLIR
Allar nánari upplýsingar og skoðun veitir Sigríður Rut löggiltur fasteignasali í gsm : 699-4610 eða siggarut@fstorg.is og Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / Helgi@fstorg.is 


NÁNARI LÝSING : 
Forstofa góðum fataskáp frá GKS. 
Eldhús með fallegri innréttingu frá GKS. Helluborð frá BORA og önnur heimilistæki er frá AEG. Borðplöturn eru plastlagðar í gráum lit Kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. Eldhús er opið við stofu og borðstofu.
Stofa og borðstofa eru rúmgóð með útgengi út á svalir. 
Hjónaherbergi með fataherbergi innaf, skápar frá GKS.
Baðherbergi /ÞV með walk in sturtu, innréttingu við vask, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum.  Tengi fyrir þvottavél og þurrkara og innrétting.
Í kjallara er stæði nr B97 í lokaðri bílageymsla og góð sér geymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Fallegur frágangur. 

Ásvellir 3-19 eru 7 byggingar og 9 stigahús með samtengdum bílakjallara neðanjarðar undir garði á milli húsanna. Ein innkeyrsla er í bílakjallarann og þar eru samtals 101 bílastæði ásamt sameiginlegu bílaþvottastæði. Auk bílastæða í bílakjallara eru 60 bílastæði á lóð.  Húsin eru staðsteypt, einangruð og klædd að utan með álklæðningu og sementsbundnum plötum á jarðhæð. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Ásvellir skiptast í 9 stiga- og lyftuhús sem öll hafa aðgengi að bílakjallaranum úr sameign. Á jarðhæð eru aðalinngangar fyrir hvert stigahús fyrir sig. Á fyrstu hæð fylgja sérafnotareitir en á efri hæðum eru svalir sem fylgja öllum íbúðum. Í húsinu eru tveggja til fimm herbergja íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna, en með flísum á baðherbergjum og þvottahúsum. Með flestum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu. Sameign og lóð skilast fullfrágengin. Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða gilda ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna. Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar. Laus búnaður o.þ.h. sem sýndur er á teikningum en er ekki talinn upp í skilalýsingu fylgir ekki. 

Íbúðirnar á Ásvöllum eru Svansvottaðar samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. Það þýðir að allt byggingarefni sem sett er í bygginguna hefur verið samþykkt og uppfyllir kröfur Svansins.  Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkun. Kröfurnar ná einnig til gæðastjórnunar á verkstað, en skýr stýring á umhverfisþáttum og gæðastjórnun helst oft í hendur. Nánari upplýsingar um Svansvottun má finna á heimasíðu umhverfismerkisins Svansins https://svanurinn.is/voruflokkar/byggingar
Gæta skal að því byggingarefni sem keypt eru inn í íbúðina uppfylli þessar kröfur Svansins eins og t.d. gólfefni, undirlag, málning og kítti. Byggingarefni sem er umhverfisvottað og er með einhvern af þessum stimplum á umbúðunum uppfyllir sjálfkrafa kröfur Svansins. Ef ekki er stimpill til staðar er hægt að spyrja sölumenn hvort efnið sé leyfilegt til notkunar í Svansvottuð hús. 



 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskivellir 11
3D Sýn
Efsta hæð
Skoða eignina Eskivellir 11
Eskivellir 11
221 Hafnarfjörður
93.5 m2
Fjölbýlishús
312
748 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 7 - 202
Opið hús:28. sept. kl 16:30-17:30
Ásvellir 7 - 202
221 Hafnarfjörður
76.7 m2
Fjölbýlishús
211
911 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 7 - 102
Opið hús:28. sept. kl 16:30-17:30
Ásvellir 7 - 102
221 Hafnarfjörður
76.5 m2
Fjölbýlishús
211
914 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 5 - 503
Efsta hæð
Opið hús:28. sept. kl 16:30-17:30
Ásvellir 5 - 503
221 Hafnarfjörður
96.3 m2
Fjölbýlishús
312
934 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin