Andri Freyr Halldórsson lgfs & LIND Fasteignasala, kynna til sölu:
Vel staðsetta & rúmgóða 4. herbergja íbúð á 2. hæð í fallegu lyftuhúsi á frábærum stað í lindunum í Kópavogi.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 124.7 fm. Íbúðin er merkt 02-02.
*Fasteignamat skv. fmr fyrir árið 2026 er 93.700.000 kr.*
Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS
*Frábær staðsetning.
*Tvennar svalir.
*Bílastæði í bílageymslu.
Eignin skiptist í:
Forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og stæði í bílageymslu merkt B20.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri: parket á gólfi með góðum fataskáp og skóhillu.
Eldhús: með vönduðum innréttingum frá GKS í viðarútliti, innfelldum ísskáp og frysti. Helluborði, ofni, örbylgjuofni í vinnuhæð, háfi og innfeldri uppþvottavél í innréttingu. Parket á gólfi.
Stofa & borðstofa: tengjast í bjart og rúmgott rými og með viðar parketi á gólfi.
-Útgengt er úr stofu út á suður svalir.
Baðherbergi: með hvítri innréttingu frá GKS, baðkar & sturtuaðstöðu. Flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum.
Svefnherbergi 1: með viðar parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2: með viðar parketi á gólfi og fataskáp.
-Útgengt er úr herbergi 2. út á norður svalir.
Geymsla: 10.6 fm, staðsett í sameign.
Þvottahús: með skolvask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Álalind 4 er á einstaklega góðum stað í hjarta Lindahverfis. Í rólegu og vel skipulögðu íbúðahverfi. Í næsta nágrenni eru fallegar göngu- og hjólaleiðir. Leiksvæði og græn svæði sem gera umhverfið fjölskylduvænt og þægilegt.
Stutt er í alla helstu þjónustu; grunnskóla, leikskóla, íþróttasvæði og verslun. Smáralind og Smáratorg eru í örstuttri fjarlægð með öllu sem daglegt líf krefst.
Frábær tenging er við stofnbrautir og almenningssamgöngur, sem gerir staðsetninguna mjög hentuga fyrir bæði fjölskyldur og einstaklinga.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar.
Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma & SÝN.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.